<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:38:52" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:49:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:38:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég fagna umræðu um þennan mikilvæga málaflokk fyrir
    okkur Íslendinga, sem eru innflytjendamálin í víðari skilningi. Í sjálfu
    sér væri hægt að vera dramatískur og harma að ekki mælist meiri áhugi hér
    í þinginu á umræðu um þetta en sem nemur mælendaskránni eins og hún horfir
    við okkur núna, enda er það algjört grundvallarmál að mínu mati fyrir
    framtíð okkar samfélags hvernig okkur helst á þessum málaflokki, þ.e.
    innflytjendamálum. Hann hefur bersýnilega á undanförnum árum og áratugum
    verið í ákveðnum ólestri, ef svo má segja, ákveðið stefnuleysi er sagt
    hafa ríkt, þ.e. að hér sé bara látið reka á reiðanum með það í hvað
    stefnir í sambandi við t.d. hlutföll innflytjenda á móti hlutföllum
    heimamanna hérna á Íslandi, í stað þess að móta einhverja framtíðarsýn sem
    á er byggjandi fyrir Ísland, íslenska þjóð og hvernig við ætlum að hátta
    lýðfræðinni að því marki sem við getum ráðið við hana til allrar
    framtíðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Stefnuleysi er orðið sem þar hefur verið nefnt. Einhver gæti sagt
    að þetta sé mun heldur stefna, ákveðin opingáttastefna, að í raun og veru
    segja bara komi þeir sem koma geta og sjá svo hvað gerist. Það er hin
    leiðin til þess að líta á þetta, að þetta sé búið að vera svona ákveðin
    misráðin stefna. Nú þegar svo er komið, þegar allur þessi fjöldi hefur
    streymt hingað og mun að óbreyttu á komandi tímum mögulega streyma hérna
    áfram. Við getum auðvitað ekkert vitað með vissu um það, við getum hins
    vegar horft í mannfjöldaspár, tekið mið af þeim. Þær eru með efri mörk,
    miðmörk og neðri mörk í sambandi við þann fjölda innflytjenda sem hingað
    kann að streyma. En síðan eru margvíslegar aðstæður sem breytast þannig að
    það hefur sannarlega áhrif. Við sjáum auðvitað núna að það hefur hægst á
    aðflutningi borgara innan úr EES-samstarfinu. Það þarf engan
    stjarneðlisfræðing til að velta fyrir sér orsökum þeirrar þróunar núna.
    Það er auðvitað mikið frost á íbúðamarkaði, byggingarmarkaði, og
    aðflutningurinn hefur náttúrlega í gegnum áratugina byggst að hluta til
    mjög á slíkum farandverkamönnum sem koma ýmist og fara eða setjast að
    varanlega. Þannig að það er lægð í því núna en ef maður sæi fyrir sér að
    hagkerfið tæki við sér að verulegu leyti að nýju þá myndi þetta allt falla
    mögulega í sama farið og verið hefur, kannski síðustu tíu árin, þar sem
    þetta hefur verið alveg sérstaklega geyst, í raun og veru hraðari þróun
    hér en víðast hvar á byggðu bóli í allri veröld, þ.e. hversu hratt hingað
    hafa streymt innflytjendur í hlutfalli við fjölda heimamanna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er myndin sem við horfum á en síðan er spurningin hvernig
    stjórnvöld nálgast verkefnið, hvernig móttökunni er háttað, hvernig
    viðhorf mætir fólki, hvernig stjórnvöld móta sín viðhorf. Laga þau sitt
    samfélag að þörfum innflytjenda eða laga innflytjendur sig að þörfum
    samfélagsins? Þetta samspil endar á að vera spurning um hugmyndafræðilegar
    áherslur. Eins og orðræðan hefur verið hérna á síðustu árum hafa þessi
    tískuorð, um inngildingu og fjölbreytileika og styrk fjölbreytileikans,
    rétt eins og er hér í þessari áætlun, ráðið miklu um þessa orðræðu og um
    þessa nálgun stjórnvalda. Ég held reyndar að þetta sé aðeins að minnka
    eftir því sem meira raunsæi grípur um sig. Engu að síður sér maður í
    þessari áætlun — og það eru efnislegu athugasemdirnar sem, eftir að hafa
    lesið hvern stafkrók í þessari áætlun, maður leyfir sér að gera við
    nálgunina eins og t.d. er það umhugsunarefni að hér sé endilega sjálfstætt
    markmið, eins og hér er lýst, að jafna stöðu innflytjenda á vinnumarkaði á
    við stöðu innlendra á vinnumarkaði. Þetta sem sjálfstætt markmið finnst
    mér umhugsunarefni hvort þetta sé endilega eðlilegt sjálfstætt markmið
    stjórnvalda. Auðvitað eru menn á vinnumarkaði metnir eftir þeirra
    framlagi. En þegar stjórnvöld segja að við ætlum að, í raun og veru með
    ákveðnum aðgerðum, eins og maður skilur þetta, reyna að lyfta ákveðnum
    hópum væntanlega óhjákvæmilega á kostnað annarra hópa. Hvar endar slík
    nálgun ef menn ætla að fylgja henni eftir? Eða eru þetta bara orð á blaði?
    Og þá er líka spurning af hverju við setjum þessi orð á blað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er auðvitað að mörgu leyti mikið rannsóknarefni. Auðvitað er
    það þannig í vissum skilningi, ef maður horfir bara á praktískan veruleika
    á íslenskum vinnumarkaði, að innlendir starfsmenn sem hérna eru uppaldir,
    tala íslensku, auðvitað og óhjákvæmilega eru þeir alltaf í allt annarri
    stöðu en innflytjendur sem hingað eru nýkomnir. Það er bara óhjákvæmilegt
    út frá eðli máls. Það er ekki endilega til marks um kerfisbundna óréttláta
    mismunun eins og sumir vilja vera láta og eins og stundum er látið að
    liggja, að þetta sé allt saman einhvers konar söguleg tilviljun, að það sé
    einhver mismunun á milli hópa á vinnumarkaði, þegar það eru bara mjög
    eðlilegar skýringar. Þannig að þegar stjórnvöld fara svo af stað að jafna
    það, með ýmsum undarlegum leiðum eins og eru raktar hérna í þessari
    áætlun, og kannski gefst tími til að koma inn á — hver áhrifin af því
    verða. Í raun og veru, eins og maður segir, þá eru þetta yfirleitt bara
    orð á blaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er sama með ráðningarferli hjá ríki og sveitarfélögum, þarna
    koma aftur inn klisjurnar: Vinnustaðir þar sem fjölbreytni ríkir. Það er
    talað um styrkinn í fjölbreytileikanum. Það hefur aldrei almennilega verið
    útskýrt hvað er átt við með t.d. styrknum í fjölbreytileikanum. Það getur
    auðvitað verið styrkur í því að innan ákveðins hóps hafi ákveðnir aðilar
    ákveðna styrkleika og aðrir aðra en að hann sé í eðli sínu styrkur í því
    að það sé fjölbreyttur hópur að verki frá mörgum mismunandi löndum, þar af
    leiðandi með ólíkan bakgrunn, jafnvel ólík tungumál; að það sé styrkur í
    eðli sínu er ekki aðeins bara innantóm klisja heldur er að mörgu leyti
    efnislega ekki rétt. Það er auðvitað líka styrkleiki í að fólk hafi
    sameiginlegt gildismat og sameiginlegt tungumál. Það er ákveðinn styrkur í
    einsleitninni að því leytinu til en það hentar ekki klisjukenndum frösunum
    í þessari umræðu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan er það fræðslan, að það sé einhvern veginn hægt að fræða
    fullorðið fólk út í hið óendanlega, að hið opinbera geti einhvern veginn
    frætt okkur út úr öllum mögulegum vanda, bara með því að setja auknar 20
    millj. kr., 30 millj. kr. hér og þar í aukin fræðsluátök. Hérna er verið
    t.d. að leggja upp með að fræða fólk um samfélagslegan ávinning af jafnri
    stöðu íbúa óháð uppruna, fræða fólk um einkenni inngildandi samfélags og
    styrkleika fjölbreytni á vinnustöðum, að opinberu fé verði varið í að
    fræða m.a. Íslendinga um voðalega loftkennd pólitísk klisjukennd að hluta
    til ósannindi en í besta falli bara svona loftkenndar pælingar sem eru
    ekki hönd á festandi, að sé verið að verja opinberu fé í að fræða fólk um
    þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þar kem ég kannski svolítið að kjarna máls, sem ég er ánægður með
    að mér gefst tækifæri til að nefna innan þessa þrönga stakks sem mér er
    sniðinn, að viðhorf til innflytjendamála hafa mjög breyst. Alveg frá því
    að mælingar hófust á vegum hins opinbera frá 2017 hefur almenningur breytt
    um viðhorf gagnvart innflytjendamálum og innflytjendastefnunni. Ég tel
    skýringuna á því ekki vera að skyndilega blossi upp eitthvert óskilgreint
    og óskiljanlegt þjóðernishatur hjá venjulegu fólki eins og stundum er
    látið að liggja. Ég, vel að merkja, hafna því einmitt alveg að í þessari
    umræðu séu stóru breyturnar einhvers konar hatur, fyrirlitning eða
    fjandskapur í garð útlendinga eins og stundum margir gefa í skyn. Þetta
    eru mun frekar einmitt bara tilfinningar fólks, góðs fólks, vel að merkja,
    á víð og dreif um samfélagið þegar þau sjá að kannski öll þessi óraunhæfu
    markmið með innflytjendastefnu, þessar óraunhæfu hugsjónir sem voru
    notaðar til að réttlæta allt heila málið, hafa kannski ekki alveg reynst
    réttar. Og þegar þessi viðhorf breytast eru stjórnvöld að fylgjast með
    þessari viðhorfsbreytingu. Ég hnaut um lýsingar hér í þessu um að eftir
    því sem viðhorfin — og núna veit ég ekki hvort manni gefist tími til að
    finna þetta. En jú, hér er sem sagt talað um að niðurstöður þessara
    viðhorfsmælinga verði notaðar til að auka skilning á málefnum innflytjenda
    sem ætlað er að vinna gegn neikvæðum viðhorfum. Þannig að stjórnvöld eru í
    raun og veru með markviss markmið í þessari stefnu um að, eins og það er
    orðað, að vinna gegn neikvæðum viðhorfum. Viðhorfum til hvers? Ja, ég
    myndi lýsa því einfaldlega þannig að átt sé við neikvæð viðhorf til
    innflytjendastefnunnar. En það er aftur þessi trú, að bara með aukinni
    fræðslu <ns:bjalla/> sé hægt að telja almenning af því að
    innflytjendastefna síðustu ára hafi verið misráðin og ég tel það ekki
    raunhæft. <ns:bjalla/> Ég tel ekki að stjórnvöld eigi að verja fé sínu í
    það en verð því miður að láta staðar numið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>