<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:49:20" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:51:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:49:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar
    aðeins að koma inn á þetta varðandi styrkinn í fjölbreytninni. Hv.
    þingmaður heldur því fram að það sé ekki rétt efnislega að einhver styrkur
    sé í fjölbreytni. Aftur á móti hefur sú sem hér stendur lesið um það í
    fleiri en einu fræðiriti að það sé reyndar þannig samkvæmt rannsóknum á
    ákvarðanatöku o.s.frv. að fjölbreyttir hópar taki almennt betri
    ákvarðanir. Auðvitað er þetta í víðum skilningi en hefur verið töluvert
    rannsakað og þetta er eitthvað sem fólk lærir bara á fyrstu önn í háskóla
    í mörgum félagsgreinum, sálfræði o.s.frv.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði að spyrja, þetta er svona fyrsta spurningin, hvað hv.
    þingmaður hefur fyrir sér í því að segja að þetta sé rangt. Ég held að það
    sé ekki rétt en það verður áhugavert að heyra um hvað hv. þingmaður er að
    tala þegar hann heldur þessu fram.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo varðandi glæpatíðnina, af því að hv. þingmaður kom inn á það í
    andsvari sínu við hæstv. ráðherra hér áðan og spurði hæstv. ráðherra,
    þegar við vorum að ræða aðgerðaáætlun um málefni innflytjenda, hvort það
    væri fyrirhugað að vera með mælaborð um glæpatíðni. Mig langar að spyrja í
    þessu sambandi og í samhengi við aðgerðaáætlunina: Sér hv. þingmaður ekki
    neitt jákvætt við þær aðgerðir sem eru listaðar upp og hafnar hv.
    þingmaður alfarið öllum aðgerðum sem eiga að stuðla að aukinni inngildingu
    og að fólk geti tekið þátt í samfélaginu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>