<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:51:38" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:54:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:51:38">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem var
    þríþætt og ég get reynt að rekja mig í gegnum sjónarmiðin. Í sambandi við
    hina pólitísku klisju um að fjölbreytileiki sé í eðli sínu styrkur og
    hvort rannsóknir vinstri sinnaðra háskólamanna komist að þeirri
    niðurstöðu, þegar lagt er upp með að komast að slíkri niðurstöðu, að
    fjölbreytileiki í ákveðnum skilningi, eins og þjónaði hagsmunum þeirrar
    rannsóknar, geti verið styrkur. Nú er ég auðvitað að mála þetta upp í mjög
    svona kannski einhlítri mynd, að þessi niðurstaða sé sú sem kemur upp úr
    svona vinnu. Í raun og veru er það miklu meira praktískur veruleiki
    lífsins sem maður myndi benda á frekar en rannsóknir, sem geta verið
    gerðar undir alls konar formerkjum, eins og ég segi, komast að niðurstöðu
    um.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef við horfum bara á þjóðfélag, þegar fjölbreytileiki, eins og
    hann er skilgreindur í þessu tilviki — vegna þess að ég er alveg sammála
    því, eins og hv. þingmaður nefnir, að fjölbreyttir hópar geti unnið að
    einhverri niðurstöðu. En hvers konar fjölbreytileika erum við þá að tala
    um? Auðvitað erum við sem mannfólk, og erum nú þegar sem íslenskt
    samfélag, mjög fjölbreytt samfélag. En ég er að tala um þessa nýju
    pólitísku hugmynd um fjölbreytileika, að það eigi að vera fjölbreyttur
    þjóðernisuppruni til dæmis, sem er verið að tala um hérna, að það sé
    ákveðinn styrkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fyrsta lagi veit ég ekki hvort þessar rannsóknir komast endilega
    að þeirri niðurstöðu sem hv. þingmaður vísar til. En í öðru lagi sér maður
    bara að það eru aðrar rannsóknir, held ég, sem geta sannarlega sýnt fram á
    að þegar það kemur meiri fjölbreytileiki í samfélög þá dregst líka saman
    ákveðið samfélagslegt traust, ákveðin samfélagsleg samheldni. Það eru
    ýmsir kostir sem einsleit lítil samfélög hafa sem fjölbreyttari stærri
    samfélög hafa alls ekki. Ég veit að það má vafalaust finna rannsóknir sem
    renna stoðum undir þetta en ég þarf engar rannsóknir til þess, maður bara
    sér það og finnur það. Maður finnur að samfélög breytast <ns:bjalla/>
    eftir því sem innflytjendastefnan er róttækari. <ns:bjalla/> Þannig að ég
    furða mig að vissu leyti á því að hv. þingmaður Samfylkingarinnar taki
    ekki undir þessi sjónarmið mín en vilji berjast við þetta áfram.
    <ns:bjalla/> Ég lauma þeirri spurningu að hvort hv. þingmaður
    Samfylkingarinnar leggist gegn svona mælaborði um glæpatíðni eins og vísað
    var til.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="EÁs"> Forseti minnir hv. þingmann á að ræðutími
    er tvær mínútur undir þessum lið.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>