<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:54:24" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:56:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:54:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er auðvitað auðvelt að hunsa niðurstöður
    einhverra rannsókna vegna þess að maður heldur því fram að rannsakendur
    séu vinstrisinnaðir, án þess að vita nokkuð um það. En allt í lagi, við
    getum skipst á þessum rannsóknum, ég og hv. þingmaður, og þetta er
    auðvitað hluti af einhverri stærri umræðu. En ef maður heldur því fram að
    eitthvað sé beinlínis rangt þá finnst mér eðlilegt að þurfa að rökstyðja
    það með einhverjum hætti og hv. þingmaður rökstyður það með sinni upplifun
    og vitnar til einhvers hugsanlegs um einsleit samfélög og það er
    áhugaverður punktur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi spurninguna til mín þá getur hv. þingmaður spurt mig
    þegar ég held ræðu. Þessi liður er ekki gerður til þess, að mér skilst. En
    ég vil aftur spyrja hv. þingmann, af því að nú erum við að ræða
    aðgerðaáætlun um málefni innflytjenda sem ég tel til bóta — og það er mín
    sannfæring að samfélagið geti svo sannarlega grætt á því að vera hér með
    innflytjendur, að við getum öll grætt á því og að þeir sem hingað koma fái
    tækifæri til að aðlagast samfélaginu. Það er mín afstaða að það sé líka
    hlutverk stjórnvalda að auðvelda það. Við höfum hér í þessum þingsal rætt
    önnur lönd eins og t.d. Danmörku þar sem er beinlínis miðstöð þar sem
    innflytjendur koma og það er lagt mikið upp úr því að vera t.d. með
    ókeypis tungumálakennslu, auðvelda aðgengi að samfélaginu með þeim hætti.
    Og mig langar því aftur að spyrja þingmanninn: Leggst hann gegn þessum
    aðgerðum? Leggst hv. þingmaður gegn aðgerðaáætluninni eða aðgerðunum hér
    undir, t.d. því að auka aðgengi að íslenskunámi, bæta mat á erlendri
    menntun og starfsreynslu, auka þátttöku barna og ungmenna í íþrótta-,
    æskulýðs- og tómstundastarfi, <ns:bjalla/> efla geðheilbrigðisþjónustu við
    flóttafólk? Leggst hv. þingmaður gegn þessu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>