<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:56:49" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:59:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:56:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>sVirðulegur forseti. Nei, ég svara því nú neitandi að ég leggist
    gegn ýmsum þeim aðgerðum sem stjórnvöld geta gripið til til að gera
    aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi sem farsælasta. Auðvitað leggst
    maður ekki gegn slíku.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég bendi hins vegar á að þegar við erum, eins og í þessari
    aðgerðaáætlun, að koma á fót í raun og veru meiri háttar umfangsmiklu
    bákni innan ríkiskerfisins til að ná utan um málaflokk innflytjenda, að
    verja til þess fleiri milljörðum á næstu árum, fleiri tugum milljarða
    líklega ef maður tekur allt saman; koma á fót margvíslegum, flóknum og
    erfiðum aðgerðum til að ná utan um þetta verkefni sem er aðlögun
    innflytjenda að íslensku samfélagi — finnst mér tilefni til að benda á að
    þetta eru þau skref sem við þurfum að stíga til að mæta öllum þeim
    áskorunum sem hafa sannarlega flætt yfir samfélagið með þessari
    innflytjendastefnu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Oft er látið eins og þetta sé allt mjög átakalaust, að fólk geti
    bara komið, aðlagað sig hratt að samfélaginu o.s.frv., að þetta gangi bara
    svona fyrir sig. Í næstu setningu er talað um að við þurfum að stunda
    eitthvað sem heitir inngilding, þ.e. að laga okkar samfélag að þörfum
    innflytjendanna í stað þess að gera frekar einfalda almenna kröfu um að
    innflytjendur lagi sig að okkar samfélagi. Það er kjarni málsins í mínum
    málflutningi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Viðhorfið sem birtist í aðgerðaáætlunum sem þessum er
    grundvallarnálgun sem ég felli mig ekki alveg við. Í fyrsta lagi er hún
    ekki alveg raunsæ, t.d. þegar við tölum um íslenskunám fyrir útlendinga.
    Það hefur verið talað um það frá aldamótum að það þurfi að bæta það og
    auðvitað vilja allar ríkisstjórnir gera það. En það hefur ekki reynst
    raunhæft og ég óttast að það verði minna og minna raunhæft með hverju
    árinu sem líður af óbreyttri innflytjendastefnu. Það þarf að horfast í
    augu við veruleikann.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo í öðru lagi, þetta viðhorf um að Íslendingar hafi varið litlum
    fjármunum til að kenna innflytjendum <ns:bjalla/> en innflytjendur vilji
    læra tungumálið. Þetta gildir í einhverjum tilvikum en það er ekki
    Íslendingum að kenna hvernig komið er fyrir okkur með þetta. <ns:bjalla/>
    Þetta er í raun og veru tvískipt verkefni og við berum öll ábyrgð á þessu
    en þetta eru ekki bara Íslendingarnir sem eru nískir og letjandi við að
    kenna íslensku. <ns:bjalla/> Mér finnst þetta viðhorf ekki alveg
    ganga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>