<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:59:28" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:05:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:59:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra,
    Ragnari Þór Ingólfssyni, fyrir að leggja fram þessa aðgerðaáætlun. Ég hef
    verið innflytjandi í öðru ríki, flutti sex ára til Bandaríkjanna og þar
    blasti við mér ákveðið kerfi. Maður fylltist auðvitað ákveðnu óöryggi sem
    sex ára barn, búin með leikskóla á Íslandi en ekki grunnskóla og hóf
    grunnskólagöngu mína í Bandaríkjunum þar sem ég kunni þrjú orð, með leyfi
    forseta: „Yes“, „no“, og svo var ég alltaf að reyna að læra orðið
    „strawberry“, eða jarðarber; uppáhaldsávöxturinn minn. Þetta óöryggi hvarf
    fljótt vegna þess að þar tók við mér enska sem annað mál eða á ensku, með
    leyfi forseta, „ESL“, og á einu ári varð ég altalandi á ensku og nýt góðs
    af því í dag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo var aftur á móti annað mál þegar sú sem hér stendur flutti
    aftur til Íslands 15 ára gömul og átti hreinlega erfitt með að beygja orð
    á íslensku vegna þess að þetta er erfitt tungumál. Við erum ekki að gera
    neinum neinn greiða hér með því að leggja ekki áherslu á að taka á móti
    bæði börnum og fullorðnum sem hingað koma og aðstoða þau við að læra
    tungumálið. Það er ekki auðvelt að vera innflytjandi staddur í nýju landi,
    hvort sem maður er barn eða fullorðinn, og þurfa að læra heilt tungumál
    upp á nýtt en það er auðvitað hægt. Það er mín afstaða að auðvitað er það
    hlutverk ríkisins, ef við viljum að hér aðlagist fólk íslensku samfélagi,
    að fólk sé hluti af okkar samfélagi, tali okkar tungumál — já, við eigum
    að gera kröfu til fólks sem hingað kemur en við eigum líka að gera það sem
    við getum til þess að hjálpa fólki að aðlagast samfélaginu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þessari aðgerðaáætlun er gert ráð fyrir að u.þ.b. 4 milljarðar
    renni í þær aðgerðir sem farið var yfir hér á undan af hæstv. ráðherra á
    fjórum árum. Það er sirka milljarður á ári. Það eru ekki stórar upphæðir.
    Í t.d. Finnlandi, sem er eitt af okkar samanburðarríkjum, eru 26 sinnum
    fleiri ókeypis kennslustundir í finnsku fyrir innflytjendur. Ég verð að
    segja að mér hefur þótt það öll þessi ár síðan ég flutti til Íslands 15
    ára gömul að við getum staðið okkur betur þegar kemur að því að taka á
    móti innflytjendum. Það var erfitt fyrir mig, sem fæddist á Íslandi, bjó
    hér í sex ár áður en ég fluttist til Bandaríkjanna, að læra íslensku. Ég
    þurfti að leggja mjög hart að mér og gerði það. Einhverjum kann að hafa
    fundist það skrýtið að vera að læra heima allan júlímánuð til að reyna að
    geta talað við bekkjarsystkini mín án þess að beygja tungumálið vitlaust.
    Það var erfitt fyrir mig þannig að ég get ímyndað mér að það sé enn þá
    erfiðara fyrir þau sem ekki hafa þennan grundvöll og hafa ekki notið
    þeirra forréttinda að hafa fæðst hér á Íslandi. Já, ég held að það sé
    erfiðara fyrir þá einstaklinga að læra íslensku án aðstoðar eða með minni
    háttar aðstoð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að síðustu ár og áratugi hefðum við átt að vera búin að
    innleiða sams konar aðgerðaáætlun. Ég held að við hefðum átt að setja
    miklu meiri fjármuni í það fyrr að efla t.d. íslenskukennslu. Hér í
    þessari aðgerðaáætlun fara 63% af áætluðum kostnaði af þessum 4 milljörðum
    einmitt í þetta, íslenskunám og notkun íslensku. Þetta er langstærsti
    liðurinn í þessari aðgerðaáætlun. Mér finnst það ekki vera risaríkisbákn.
    Mér finnst það vera góð ráðstöfun. Hún mætti vera enn þá meiri. Ég fagna
    því innilega að þessi aðgerðaáætlun sé komin fram. Ég vona að við hér á
    Alþingi Íslendinga berum gæfu til að samþykkja þessa aðgerðaáætlun þvert á
    flokka vegna þess að þetta er hluti af því sem við getum jú gert. Auðvitað
    þurfa einstaklingar sem hingað koma að leggja mikið á sig til að aðlagast
    íslensku samfélagi en það er okkar hlutverk — það er alla vega mitt mat og
    ég horfi á það þannig — sem erum í stjórnmálum að auðvelda fólki það. Ef
    við búumst við því að einstaklingar sem hingað koma aðlagist samfélaginu
    og lúti reglum samfélagsins þá finnst mér við líka verða að taka þátt í
    því og auðvelda fólki að taka þátt í þessu samfélagi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>