<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:05:33" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:07:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:05:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn á ný fyrir hennar
    umfjöllun um málið, að hún skuli a.m.k. taka þátt í umræðum hér í dag. Af
    því að það var nú hálfpartinn skorað á mig úr þessum ræðustól hér fyrir
    nokkru að spyrja hv. þingmann út í hennar afstöðu um eiginlegt mælaborð um
    innflytjendur þar sem m.a. kæmi fram t.d. umfang afbrota eftir t.d.
    upprunalandi, eins og systurflokkur hv. þingmanns í Danmörku hefur staðið
    fyrir að birt sé. Danir hafa í gegnum tíðina gert sér töluverðan mat úr
    slíkri tölfræði og notað hana til stefnumótandi vinnu þar í landi. Hér
    hefur nú um nokkurra ára skeið verið ákveðin umræða um svona mælaborð um
    innflytjendamál hérna á Íslandi. Ekki það, þegar ónefndir flokkar sem bera
    sína ábyrgð á hinni misráðnu útlendingastefnu síðustu ára gera of mikið úr
    nauðsyn svona mælaborðs má svo sem alveg hafa gaman af því. Þetta er
    auðvitað ekkert lykilmál eða kjarnamál. Þessi tölfræði liggur fyrir inni í
    kerfinu og það er hægt að taka ákvarðanir út frá þessu en þetta er engu að
    síður upplýsandi fyrir t.d. almenning. Ég spyr hvort hv. þingmaður styðji
    svona birtingu gagna eður ei vegna þess að mér þótti nú heldur hljóma eins
    og hv. þingmaður væri að gera ákveðna athugasemd við að maður hefði áhuga
    á þessu máli hérna rétt í upphafi þessarar umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>