<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:07:25" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:08:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:07:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni Snorra Mássyni fyrir andsvarið
    og spurninguna. Nei, ég get ekki sagt að ég leggist gegn slíkri birtingu
    upplýsinga og, eins og hv. þm. Ingveldur Anna Sigurðardóttir kom jafnframt
    inn á í sínu andsvari við hæstv. ráðherra, sérstaklega í því samhengi að
    um sé að ræða mælaborð með ýmsum þáttum, t.d. glæpatíðni, atvinnuþátttöku
    og fleiri atriðum sem í raun og veru mæla inngildingu heildstætt. Ég get
    ekki lagst gegn þannig upplýsingaöflun. Ég held að auðvitað séu slíkar
    upplýsingar af hinu góða og það verður áhugavert að ræða um slíkar
    hugmyndir í hv. velferðarnefnd. Auðvitað er það hluti af aðgerðaáætluninni
    að safna einmitt tölfræðiupplýsingum og setja þær fram. Auðvitað þurfum
    við að vera með mælanlegan árangur og ég tek sannarlega undir það að ef
    við setjum fram markmið, eins og er oft gert í svona
    þingsályktunartillögum eða aðgerðaáætlunum, þá verðum við með einhverjum
    hætti að geta mælt þær. Þannig að ég leggst ekki gegn slíkri
    upplýsingasöfnun. En ég gerði kannski athugasemd við að hv. þingmaður, að
    mér fannst, rauk beint í að tengja þennan málaflokk við glæpatíðni. Það
    var það sem ég gerði athugasemd við og það var svona það helsta sem kom
    fram, fannst mér, í fyrra andsvari hv. þingmanns.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>