<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:09:06" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:11:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:09:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Já, ég held að það gerist nú oft í þessari
    umræðu að maður sé kannski að einhverju leyti sammála jafnaðarmönnum um
    þessi mál. En það er nú líkt þeim að gera athugasemd við uppröðun
    umræðuefna á þessu sviði vegna þess að hún lýsir kannski ekki nógu vel
    góðmennsku þess sem talar þá stundina. En það er svo sem langvarandi
    vandamál í pólitíkinni. Ég held að ég og hv. þingmaður séum að mörgu
    leyti, ef maður færi yfir þennan málaflokk, sammála um hvað eina í þessu,
    þótt mér þyki hv. þingmaður ekki kannski alveg hafa svarað skýrt um það
    hvort hún styðji mælaborð um fjölda afbrota eftir upprunalandi. Það væri
    áhugavert að fá það já eða nei-svar frá hv. þingmanni, ef henni þóknast
    það. En að öðru leyti er hin spurningin og vangaveltan kannski bara mun
    frekar sú að ég er, eins og ég tók nú skýrt fram áðan, síst mótfallinn því
    að stjórnvöld hniki til ýmsu hjá sér til að stuðla eins og orðið getur að
    aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi. Ég tel hins vegar ekki
    nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld gangi fram fyrir skjöldu með hugtök eins
    og inngildingu, sem mér hefur frekar þótt felast í því að íslenskt
    samfélag þurfi að laga sig að komumönnunum frekar en að komumennirnir lagi
    sig að íslensku samfélagi. Það er þessi greinarmunur sem ég geri á þessum
    hugmyndum um aðlögun og innflytjendur. Þar að auki tel ég varðandi
    fjöldann sem hingað hefur komið á síðustu árum, ef fram heldur sem horfir,
    ef slík þróun heldur áfram, að það sé algerlega ósjálfbært. Það er
    spurning hvort hv. þingmaður deili því mati, af því að eins og orðið getur
    held ég að menn séu almennt sammála um að t.d. börnum innflytjenda á að
    vera kennd íslenska í skólakerfinu. Hins vegar er alltaf spurning um það
    hvernig við horfum á stefnuna til framtíðar og hvort við teljum raunhæft
    að ná þessum markmiðum, t.d. um íslenskukennslu og annað, þegar fjöldinn
    er eins og hann hefur verið, vegna þess að því miður hefur þetta
    einfaldlega alls ekki reynst raunhæft markmið að neinu leyti ef þú horfir
    á niðurstöðuna.<!--*15:11:09 ef  þú horfir á niðurstöðuna (einangraða?). Heyri ekki alveg síðasta orðið.--></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>