<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:11:22" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:13:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:11:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég er
    nú ekkert að setja spurningarmerki við góðmennsku hv. þingmanns, það er
    ekki ætlun mín hér. En auðvitað slær það mann stundum, og það er alveg
    þannig og hefur verið fjallað um það töluvert, að því er oft slegið upp
    t.d. í fjölmiðlum og sett fram einhver tengsl og gefin svona ákveðin mynd
    af upprunalandi fólks og glæpatíðni. En varðandi mælaborð og
    upplýsingasöfnun þar að lútandi: Nei, ég set mig ekki upp á móti því, til
    að svara spurningu hv. þingmanns. En varðandi það að íslenskt samfélag
    lagi sig ekki að einstaklingum sem hingað koma þá lít ég ekki svo á, til
    að mynda í þessari aðgerðaáætlun þar sem verið er að setja fjármagn, og
    meiri hluta þess fjármagns sem áætlað er í aðgerðaáætlunina, í
    íslenskukennslu sem dæmi, að við séum að aðlagast innflytjendum. Ég lít á
    það sem svo að við séum að auðvelda fólki að aðlagast íslensku samfélagi.
    Ég held að það sé mjög mikilvægt að við gerum það, sérstaklega ef við erum
    með ákveðnar kröfur til íslenskukunnáttu o.s.frv. Varðandi fjöldann sem
    hingað hefur komið, auðvitað tengist það atvinnustefnu í því hvernig við
    byggjum hér upp iðnað, innviði o.s.frv. Ég er ekki sammála því að það eigi
    að segja upp EES-samningnum eða eitthvað slíkt til þess að stemma stigu
    við því. Ég held að við getum fyrst og fremst staðið okkur betur í því að
    aðstoða fólk við að komast inn í samfélagið og aðlagast samfélaginu. En
    þessi ríkisstjórn hefur vissulega gert margt til þess að ná tökum á
    <ns:bjalla/> t.d. þeim mun sem hefur verið á Íslandi og öðrum
    Norðurlöndum, sem dæmi, <ns:bjalla/> þegar kemur að umsóknum um alþjóðlega
    vernd. Það er mér mjög mikilvægt að við tryggjum réttindi fólks,
    mannréttindi, <ns:bjalla/> en að við séum líka í samræmi við önnur
    samstarfsríki þegar kemur að því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>