<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:24:31" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:26:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:24:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir
    ræðu sína. Mig langar að spyrja, eins og ég spurði hv. þm. Snorra Másson,
    út í þessa aðgerðaáætlun sem felur í sér áætlaðan kostnað til að mynda við
    íslenskunám og notkun íslensku, að það renni 2,5 milljarðar í það á árunum
    2026–2029. Hv. þingmaður sagði áðan að ekki allir sem hingað koma vilji
    verða Íslendingar eða aðlagast íslensku samfélagi en bætti svo við að
    sumir vilji það. Er hv. þingmaður mótfallinn því að ríkið leggi til
    eitthvert fjármagn til að auka íslenskukennslu fyrir þá sem hingað koma?
    Er þingmaðurinn alfarið mótfallinn ríkisafskiptum af því tagi eða telur
    hv. þingmaður að ríkið megi, geti eða jafnvel eigi — kannski gengur hv.
    þingmaður ekki svo langt að segja: eigi, en telur þingmaðurinn að það geti
    verið hluti af því sem ríkið leggur til til þess að hjálpa fólki að
    aðlagast samfélaginu, ef það vill það, að auka aðstoð eða íslenskukennslu?
    Það er gert, eins og við ræddum um áðan í þessum sal, t.d. í Danmörku og í
    Finnlandi eru 26 sinnum fleiri fríar kennslustundir í finnsku en við erum
    með hér í íslensku. Hvað finnst hv. þingmanni um þessa aðgerð?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>