<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:26:25" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:28:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:26:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég fagna hverjum þeim sem vill læra íslensku og mér
    finnst eðlilegt að við styðjum slíka kennslu. Við gerum það reyndar nú
    þegar, en það má vel vera að það geti komið að gagni að auka við þann
    stuðning. Þó þarf að hafa í huga að það er ekki alltaf samasemmerki milli
    árangurs og fjármagns sem sett er í hlutina eins og grunnskólakerfið okkar
    sýnir. Við þurfum líka að velta því fyrir okkur hvernig er hægt að
    fjármagna nýtt og til hvers það er ætlað. Er það ætlað til þess að
    inngilda, eins og það er kallað, fólk sem hefur engan áhuga á því að læra
    íslensku og mun ekki mæta í þessa tíma og vill ekkert með þetta gera eða
    er því ætlað að koma til móts við þá sem raunverulega hafa áhuga á því að
    læra tungumálið. Með öðrum orðum: Okkur hættir svolítið til hér á Alþingi
    að meta viljann og væntan árangur út frá peningunum sem settir eru í
    hlutina en ekki út frá aðferðunum sem kynntar eru eða hvernig eigi að nýta
    þessa peninga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður nefndi hér áðan reynslu sína af því að hafa flust
    til Bandaríkjanna sem barn. Það gerði ég líka, flutti þangað á svipuðum
    aldri og hv. þingmaður og kunni ekki ensku og fór í skóla. Ég fór ekki inn
    í neitt prógramm fyrir Íslendinga, ég fékk ekki aðstoðarkennara sem talaði
    við mig á íslensku. Manni var svona nokkurn veginn hrint út í laugina og
    þurfti að synda. Þetta er eitt af því sem við þurfum að velta fyrir okkur
    þegar við erum að tala um að setja t.d. aukið fjármagn í tungumálakennslu
    en við erum á sama tíma að setja gríðarlega peninga í að þýða allt yfir á
    hin ýmsu tungumál, arabísku og hin ýmsu tungumál, og ráða túlka, veita
    fólki rétt á túlkaþjónustu við alls konar aðstæður og jafnvel fjarlægja
    þannig hvatann til að læra tungumálið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>