<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:28:45" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:30:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:28:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið við andsvarinu og
    gaman að heyra að hv. þingmaður hafi þessa reynslu líka. Ég vissi það
    ekki. Við eigum þetta sameiginlegt. Ég vil taka fram að sú sem hér stendur
    var ekki í enskukennslu fyrir Íslendinga heldur bara fyrir öll börn með
    annað móðurmál en ensku. En hvað um það. Ég tek undir með hv. þingmanni
    varðandi mikilvægi þess að mæla árangur og að meta það hvort fjármagn sem
    fer í eitthvað skili sér. Ég held að það sé mikilvægt í þessari
    aðgerðaáætlun sem og öðrum að við séum með mælanlegan árangur eða
    mælikvarða sem segja til um hvort að þessar aðgerðir og þetta fjármagn
    skili sér. Ég held því að við getum verið sammála um þetta, ég og hv.
    þingmaður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi atvinnuþátttöku, af því að hv. þingmaður kom inn á það í
    ræðu sinni, að einhverjir sem hingað koma taki ekki þátt á atvinnumarkaði,
    þá kom áhugaverð skýrsla út fyrir ári síðan frá Alþýðusambandi Íslands eða
    könnun sem var gerð sem sýndi fram á það að atvinnuþátttaka var reyndar
    meiri, alla vega samkvæmt þessari könnun, á meðal innflytjenda en
    innfæddra Íslendinga. Þannig að mig langaði að spyrja hv. þingmann hvað
    honum fyndist um aðgerðirnar í aðgerðaáætlun varðandi vinnumarkaðinn,
    hvort hann styddi þær eður ei.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>