<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:30:52" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:33:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:30:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Góð og gild spurning en hún krefst lengri tíma en
    þessara tveggja mínútna sem ég hef. Ég hefði skráð mig í aðra ræðu m.a.
    til að ræða þetta ef það væri kostur á því. Það er mjög margt sem þarf að
    huga að sem mér finnst ekki nógu vel hugað að í þessu þó að ég viðurkenni
    að eitt og annað varðandi vinnumarkaðinn er til bóta í þessari áætlun eða
    þess virði að vinna með áfram. En í tengslum við áhrif á vinnumarkað þá
    þurfum við líka, eins og ég gat um í ræðu minni, að líta til þess hvaðan
    og á hvaða forsendum fólk kemur hingað. Ég minnist þess að hafa verið í
    tíma í stjórnmálafræði í Kaupmannahafnarháskóla seint á síðustu öld og þar
    var verið að fara yfir reynslu Dana af þessum málum. Þar kom einmitt fram
    að þá þegar var mikil atvinnuþátttaka meðal Pólverja í Danmörku, jafnvel
    meiri en Dananna sjálfra. Svo var svona listi yfir hin ólíku upprunaríki
    og meðal sómalskra karlmanna var atvinnuþátttaka 2% og skilaboðin voru
    þessi: Ef við ætlum að fara í einhverjar ráðstafanir varðandi tengingu
    innflytjendamála og vinnumarkaðarins þá þurfum við að gera okkur grein
    fyrir þessum mikla mun og við þurfum líka að gera okkur grein fyrir
    áhrifum á velferðarkerfið. Ég myndi hvetja sósíaldemókrata á Íslandi til
    þess, eins og ég hef reyndar gert alloft áður, að líta til flokkssystkina
    sinna í Danmörku. Þar var það ekki hvað síst bók dansks þingmanns, Mattias
    Tesfaye, múrara, upprunninn í Eþíópíu, sem breytti því hvernig
    sósíaldemókratar nálguðust þessi mál. Þeir skiptu frá stefnu sem hafði
    ekki virkað í 40 ár og tóku upp það sem sumir kalla hörðustu
    útlendingastefnu af evrópskum flokkum, en það var einmitt af því að þeir
    leituðust við að læra af reynslunni, frú forseti, og ég held að
    Íslendingar gætu vel lært af reynslu Dana og ekki hvað síst
    kratanna.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>