<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:33:31" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:43:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:33:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að nota tækifærið hér til að
    leggja örfá orð í belg um þessa tillögu til þingsályktunar um
    framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda. Ég virði auðvitað hæstv.
    ráðherra það til vorkunnar kannski að hann er að reyna að mæta þeim miklu
    áskorunum sem hann metur væntanlega að séu uppi vegna fjölgunar útlendinga
    hér á Íslandi, ja, ýmist á vinnumarkaði, í atvinnulífinu, en trúlega líka
    utan atvinnulífs. Það blasir við okkur að við erum með fjölda útlendinga
    hér í atvinnulífinu en einnig marga sem eru utan atvinnulífsins. Við höfum
    svo sem verið að mörgu leyti heppin á Íslandi, okkar fámenna þjóð, í
    gegnum árin þegar kemur að móttöku útlendinga hér. Við höfum gert það með
    skipulegum hætti lengst framan af, tekið á móti t.d. flóttafólki og það
    hefur verið fjölgun útlendinga á þeim vettvangi síðustu, hvað á maður að
    segja, kannski 50 árin, lengur jafnvel, mætti nú segja, 100 árin, en svona
    með skipulegum hætti á ég við og það hefur gengið kannski að mestu leyti
    vel þó að ég þekki ekki alla kima þess og þau vandamál sem koma
    óhjákvæmilega þegar verið er að taka á móti fólki frá t.d. fjarlægum
    menningarheimum. En það hefur gengið ágætlega. Sjálf man ég eftir því sem
    krakki þegar við tókum á móti hér stórum hópi, eða sem þótti þá stór
    hópur, fólks frá Víetnam t.d., fólki sem gekk samt ágætlega að læra
    íslensku og náði fljótt tökum á a.m.k. mikilvægustu hugtökum í íslensku og
    náði einhverju valdi á íslensku. Það eru auðvitað dæmi um hið
    gagnstæða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En varðandi íslenskuna í þessari þingsályktunartillögu velti ég
    líka samt sem áður fyrir mér að það er verið að leggja til ansi víðtæk
    verkefni fyrir bæði opinberra aðila og að einhverju leyti kannski
    einkaaðila líka en aðallega opinberra aðila. Í því sambandi finnst manni —
    af því mér sýnist kannski þessi tillaga öll telja hátt í 1 milljarð, ég
    hef ekki séð hvort það er samantekt hérna á því en þetta er auðvitað
    kostnaður upp á hátt í 1 milljarð sem dreifist í ýmis verkefni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef hins vegar bent á það að kjósi menn að taka á móti og hafa
    hér algjörlega opin landamæri eða því sem næst þá verða menn að sætta sig
    við það að menn taka það súra með því sæta sem því fylgir. Og það er
    kannski óraunhæft að ætla að allt það fólk sem komi hingað nái tökum á
    íslensku eða hafi jafnvel ekki áhuga á því, það er óraunhæft að ætla að
    allir hafi áhuga á því að læra íslensku. Mér hefur virst hins vegar vera
    ýmsir hvatar nú þegar til staðar sem geri mönnum ansi auðvelt fyrir að
    læra ekki íslensku. Þetta hefur komið fram í máli einhverra hér á undan
    mér, m.a. með endalausri áherslu á að þýða upplýsingar opinberra aðila. Ég
    nefni sem dæmi líka túlkaþjónustu sem mér finnst skjóta skökku við að
    bjóðist jafnvel enn þá fólki sem hefur verið hér kannski áratugum saman,
    eða a.m.k. þekkjum við dæmi þess að fólk sem hefur verið hér í yfir tíu
    ár, 20 ár jafnvel, er enn þá að nýta túlkaþjónustu í samskiptum við
    opinbera aðila. Það finnst mér skjóta skökku við.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan finnst mér líka skjóta svolítið skökku við framsetning í
    þessari þingsályktunartillögu þar sem lögð er áhersla á að íslenska sé
    samskiptamál á Íslandi. Mér finnst nú eiginlega ekki þurfa að taka það
    fram en hér er það sem sérstakt markmið að íslenska verði samskiptamál á
    Íslandi. Mér finnst það skjóta skökku við að telja að það eigi að vera
    markmið. Íslenska er samskiptamál á Íslandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér er nefnt líka að tækifærum til að tala íslensku og æfa daglegt
    mál verði fjölgað í almannarýmum, eins og bókasöfnum, samfélagsmiðstöðvum
    og söfnum. Þá hlýt ég að spyrja hvort í þessu felist það sem ég var að
    nefna hérna áðan, að það verði þá kannski dregið úr þessum samskiptum á
    erlendum tungumálum og látið nægja að nota íslenskuna í þessum
    almannarýmum. Ég teldi það vera jákvætt að gera það þótt vissulega þurfi
    kannski upplýsingar um bráða þjónustu að liggja fyrir á a.m.k. ensku og
    einhverjum öðrum tungumálum. En maður hlýtur að velta fyrir sér hvort
    þarna sé kannski einhver stefnubreyting sem felist í þessari
    þingsályktunartillögu að þessu leyti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo velti ég líka fyrir mér hvort það sé alveg helst til
    velfarnaðar fallið að hið opinbera sé að hlutast til um þessi verkefni sem
    hér er kveðið á um. Ég nefni bara hér verkefni sem á að vera á ábyrgð
    mennta- og barnamálaráðuneytisins, og kostnaður metinn hátt í 200 millj.
    kr. á ári í það, með það að markmiði að nám í íslensku sem öðru tungumáli
    verði fjölbreytt, framsækið og aðgengilegt á landinu öllu. Ég hlýt að
    velta fyrir mér hvort þetta sé ekki bara hilluvara nú þegar, vara sem
    boðið er upp á af fyrirtækjum sem bjóða upp á íslenskukennslu. Mér finnst
    allt of mikið bera á því í umræðu um þessi mál að verkefni á þessu sviði
    þurfi alltaf að enda hjá opinberum aðilum, hjá ríkinu eða sveitarfélögum,
    og það sé einhvern veginn skylda opinberra aðila að bjóða upp á þessa
    þjónustu fyrir alla þá útlendinga sem hingað koma og kjósa að búa hér til
    lengri eða skemmri tíma líka, í ýmsum tilgangi. Þannig að ég geri a.m.k.
    smá fyrirvara við þetta og hlakka til að fjalla um þetta mál í — ja, þetta
    mál kemur kannski ekki í hv. velferðarnefnd en ég hvet a.m.k. viðeigandi
    nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar til að skoða þetta, hvort ekki
    megi draga úr kostnaði hins opinbera að þessu leyti vegna þess að eins og
    fram hefur komið hér í ræðum annarra þingmanna þá þekkjum við það öll sem
    höfum búið erlendis til lengri eða skemmri tíma að ekki í neinu landi sem
    ég þekki hefur verið sérstaklega boðið upp á tungumálanám í viðkomandi
    landi fyrir þá sem flytja til skemmri eða lengri tíma til þessara landa
    heldur þvert á móti hafa menn þurft að bera þann kostnað sjálfir og þeir
    sem mestan áhuga hafa á því finna tækifæri til að tala íslensku hér á
    Íslandi, það hlýtur að blasa við, þannig að ummæli hér í þessari
    þingsályktunartillögu um að það þurfi að fjölga tækifærum útlendinga til
    að tala íslensku skjóta skökku við að mínu mati.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ber hins vegar virðingu fyrir þessu framtaki hæstv. ráðherra að
    reyna að koma á þessi mál einhverju skikki sem hann telur að þurfi að koma
    á og auka einhverja hvata útlendinga til að tala íslensku. Ég bendi hins
    vegar á það að tungumálanám liggur misvel fyrir fólki, sumum reynist það
    bara mjög örðugt og jafnvel útlendingum sem hafa verið hér í áratugi, þeir
    munu aldrei ná tökum á íslensku. Aðrir hafa ekki á því áhuga og það er það
    sem menn þurfa að hafa í huga þegar menn tala um að laða að útlendinga hér
    til Íslands.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>