<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:43:55" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:49:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:43:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Áður en ég sný mér að einstökum liðum þessarar
    áætlunar, eins og ég nefndi m.a. í svari við andsvari hv. þm. Rögnu
    Sigurðardóttur, þarf ég að klára aðeins að fara yfir málið í heild og
    hvernig þetta blasir við í heild. Það sem veldur mér mestum áhyggjum við
    þetta mál og vonbrigðum er, eins og ég gat aðeins um hérna í fyrri ræðu en
    ætla að útskýra nánar, að það tekur ekki á vandanum. Það leitast við að
    finna leiðir til að lifa með vandanum og þannig á vissan hátt laga
    samfélagið að vandanum. Þetta hafa verið viðbrögð íslenskra stjórnvalda
    alveg frá því að fór að bera á þessari þróun, þessari gríðarlega hröðu
    þróun útlendinga hér, og það má ekki vanmeta hversu mikil áhrif það hefur
    haft. En viðbrögðin hafa eiginlega verið þau að finna leiðir til þess að
    lifa við það ástand og um leið hefur það þá aukið á hvatann til þess að
    þróunin haldi áfram með þessum hætti. Ég minnist þess til að mynda þegar
    rætt var um það, og kynnt áform um það af hálfu ríkisstjórnar, að breyta
    atvinnuhúsnæði, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði, í dvalarstaði fyrir
    hælisleitendur, allt sem sagt til að vinna með vandann og lifa með honum
    en ekki að taka á honum og mér finnst þessi áætlun svolítið brennd því
    marki líka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er vissulega vandi og meiri vandi á Íslandi en mjög víða
    annars staðar. Á örfáum árum hefur það gerst, á örfáum árum hefur hlutfall
    útlendinga hér aukist svo hratt að við erum að komast í hóp þeirra landa
    Evrópu þar sem hlutfall erlendra ríkisborgara, ef við teljum ekki fólk af
    erlendum uppruna, er hvað allra hæst. Þetta hefur auðvitað áhrif á
    samfélagið allt og kallar á viðbrögð stjórnvalda. Það má vel færa fyrir
    því rök að ekkert mál sé eins stórt og þetta, að ekkert mál kalli á eins
    afgerandi og snögg viðbrögð og þessi vandi því öll hin málin verða fyrir
    svo gríðarlegum áhrifum af stjórnleysinu á landamærunum og stjórnleysinu í
    útlendingamálum. Heilbrigðiskerfið: Vandi heilbrigðiskerfisins liggur ekki
    hvað síst í því að það hefur fjölgað á örfáum árum alveg gríðarlega, fólki
    með kannski flóknari þarfir að ýmsu leyti eða a.m.k. önnur tungumál og í
    þörf fyrir meiri þjónustu en íslenskir sjúklingar. Sama á við um skólana,
    eins og ég nefndi áðan, og það sama á við um húsnæðismarkaðinn. Það væri
    enginn húsnæðisskortur á Íslandi ef ekki væri fyrir þetta gríðarlega
    aðstreymi fólks því að Íslendingum hefur fjölgað sáralítið. Með öðrum
    orðum hefur þetta óhemjuáhrif á samfélagið allt og efnahag ríkisins og
    þess vegna ætti það að vera forgangsatriði að taka á þessu frekar en að
    búa til framkvæmdaáætlun til næstu ára sem miðar bara að því að halda
    einhvern veginn í horfinu og fást við afleiðingarnar af þessu í staðinn
    fyrir að taka á rót vandans með skýrri stefnu. Þess í stað er það þessi
    nálgun, þetta fjölmenningartal, þó að Evrópuþjóðir margar hverjar hafi
    hætt notkun slíkra hugtaka eftir að það kom í ljós, eins og meira að segja
    Angela Merkel, Tony Blair, David Cameron og fleiri leiðtogar Evrópuríkja
    viðurkenndu, að hugmyndin um fjölmenningarsamfélagið hefði ekki gengið
    upp. En hér skýtur þetta aftur upp kollinum með endalausu tali um
    inngildingu þegar það eina sem getur raunverulega virkað til að taka á
    móti nýjum landsmönnum, nýjum íbúum, er aðlögun þeirra og vilji til að
    taka þátt í samfélaginu og leggja sitt af mörkum þar. Þetta tekur ekki
    nægilega á því að mínu mati, herra forseti. — Tími minn er víst á þrotum
    og ég mun þurfa að fara í einstaka liði í næstu umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>