<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-22T15:49:22" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:51:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:49:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talar um að vinna og lifa með
    vandanum. Nú er það svo að erlent vinnuafl hefur að mestu haldið uppi
    grunnþjónustu hér á landi. Ef við skoðum atvinnugreinar eins og
    ferðaþjónustuna, til að mynda, hún hélt uppi hagkerfinu yfir ákveðinn tíma
    og vöxt hennar, atvinnugrein sem er mikið haldið uppi af erlendu vinnuafli
    sem telur nú um 25% af vinnuafli á landinu. Við getum farið í ræstingar,
    umönnunarstörf og fleiri störf sem okkur hefur ekki tekist að manna. Ég
    velti því fyrir mér að þessi andstaða Miðflokksins við nánast öll mál sem
    koma frá ríkisstjórninni og stjórnarmeirihlutanum varðandi ýmsar tiltektir
    í útlendingamálum og sömuleiðis líka leiðir til að inngilda fólk að
    íslensku samfélagi, ekki öfugt, og sömuleiðis líka leiðir til að styrkja
    stöðu fólks af erlendum uppruna á vinnumarkaði þar sem tungumálakunnátta
    eða -kunnáttuleysi hefur t.d. verið ákveðin hindrun fyrir því að fólk geti
    komið og unnið önnur störf, jafnvel störf sem það hefur fengið menntun
    til, t.d. eins og í heilbrigðisgeiranum, að þau verði metin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sakna þess svolítið í allri þessari gagnrýni að það komi
    einhverjar raunhæfar lausnir miðað við stöðuna eins og hún er sem hjálpa
    okkur við að inngilda innflytjendur betur inn í okkar samfélag.
    Sérstaklega skil ég ekki þessa gagnrýni á þessa miklu áherslu sem við erum
    að setja á íslenskukennslu, bæði í gegnum atvinnulífið og sömuleiðis líka
    grunnskólana og víðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>