<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:51:39" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:53:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:51:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Fyrst, svo ég gleymi því ekki þá vakti athygli mína að
    hæstv. ráðherra virðist leggja annan skilning í orðið inngilding en hans
    eigið ráðuneyti. En hæstv. ráðherra getur kannski farið betur yfir það við
    tækifæri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hins vegar varðandi íslenskukennsluna. Ég veit ekki hvort hæstv.
    ráðherra missti af samtali mínu við Rögnu Sigurðardóttur, hv. þingmann, um
    það mál. Ég er alls ekki að leggjast gegn íslenskukennslu en menn verða að
    vita hvert þeir ætla með henni og auðvitað, ef menn eru í þjónustustörfum,
    til að mynda, að annast eldri borgara hér á sjúkrastofnunum eða að annast
    yngstu aldurshópana á leikskólum, þá á þetta fólk að kunna íslensku. Það
    ætti að vera skilyrði þess að fá vinnuna. Svo heyrir maður þennan gamla
    söng sem ég hefði ekki átt von á frá fyrrum verkalýðsleiðtoga, en þetta
    með að Íslendingar vilji ekki vinna ákveðin störf. Af hverju? Af hverju er
    það? Eru þau ekki nógu fín fyrir þau eða eru launin of lág? Komast menn
    upp með að greiða lægri laun en ella með því að flytja inn ódýrt vinnuafl?
    Því ef vinnuafl á Íslandi á ólíkum sviðum er í samkeppni við vinnuafl frá
    löndum þar sem laun eru miklu lægri og kröfurnar minni þá veikir það
    samkeppnisstöðu þess vinnuafls, það gerir það óhjákvæmilega. Ef raunin er
    sú að til að halda uppi hagvexti þurfum við stöðugt að flytja fleiri og
    fleiri til landsins þá erum við ekki með sjálfbært hagkerfi. Hagvöxtur á
    mann á Íslandi hefur verið nánast ekki neinn undanfarin ár. Það er búinn
    til eins konar gervihagvöxtur eða jafnvel mætti kalla hann lánshagvöxt,
    með því að flytja inn vinnuafl á lágum launum fremur en að reyna að búa
    til sjálfbært hagkerfi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>