<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-22T15:53:57" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:56:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:53:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið en
    byrja á að leiðrétta: Það voru ekki mín orð að fólk nennti ekki að vinna
    þessi störf. Ég talaði um það að það tækist ekki að manna þessi störf. Við
    sjáum auðvitað fram á mikla öldrun þjóðar og miklu meiri þörf í ákveðnum
    greinum og geirum. Það hefur gengið erfiðlega að manna störf, t.d.
    umönnunarstörfin, og þess vegna er það auðvitað mjög mikilvægt, eins og
    þingmaður kemur inn á, að styðja við frekari íslenskukennslu til að
    styrkja fólk til þess að geta sinnt þessum störfum sem hefur, aftur,
    gengið illa að manna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sakna þess, og kalla kannski eftir því aftur í minni seinni
    spurningu — ég þekki það vel að það er auðvitað mjög auðvelt að gagnrýna
    allt sem gert er — ég kalla enn og aftur eftir raunhæfum lausnum miðað við
    þá stöðu sem íslenskt hagkerfi er í, það háa hlutfall á vinnumarkaði sem
    er af erlendum uppruna, og raunhæfum lausnum. Lausnin getur ekki verið sú
    að loka landamærunum og vísa fólki úr landi eftir atvikum eða fara í
    einhverjar aðgerðir sem koma í veg fyrir að okkur takist að manna mikilvæg
    störf í mikilvægum atvinnugreinum eins og mannvirkjageiranum,
    ferðaþjónustunni og víðar. Ég kalla eftir einhverju sem getur kannski gert
    þessa umræðu aðeins málefnalegri og frjórri og að komið sé frekar með
    hugmyndir frekar en endalausa gagnrýni. Ég skil svo sem alveg að það er
    hægt að gagnrýna. Ég bendi líka hv. þingmanni á atvinnustefnu stjórnvalda
    sem byggir einmitt meira og minna á því að búa hér til störf sem skapa
    hagvöxt og meiri hagvöxt á mann.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>