<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:56:13" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 15:58:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:56:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Bara til að klára þetta með íslenskukennsluna. Eins
    og ég gat um áðan þá er ekkert nema gott um það að segja að gefa þeim sem
    hafa áhuga á því að læra íslensku færi á því. Og ef menn ætla að vera í
    starfi, til að mynda að annast börn á leikskólum eða eldri borgara á
    hjúkrunarheimilum, þá ætti að gera kröfu um að fólk kunni íslensku og að
    þeir sem hugsa sér að fara í þau störf læri hana og kennslan sé
    aðgengileg. Það sem mér hefur hins vegar þótt vanta upp á er að menn líti
    á heildarmyndina, því ég er búinn að heyra þetta tal um íslenskukennsluna
    hérna í þessum sal, a.m.k. átta ár. Þetta var mikið rætt hjá síðustu
    ríkisstjórn þegar vöxturinn var sem mestur. Við þurfum bara að taka á
    þessu með því að auka áherslu á íslenskukennslu. Og alltaf kom þetta ár
    eftir ár. Nú aukum við áhersluna á íslenskukennslu og þá leysum við málið.
    Svo leystist málið ekki neitt. Það bara hélt áfram að vaxa og vandinn hélt
    áfram að vaxa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þótt það sé vissulega kostur fyrir hagkerfið að hafa aðgang að
    vinnuafli á ákveðnum sviðum þegar skortur er á því, þá megum við samt ekki
    fara að reka hagkerfi þannig að við verðum háð því að þurfa alltaf að
    fjölga meira og meira á þeim markaði. Við þurfum að byggja fleiri íbúðir
    af því að það er komið svo mikið af útlendingum og þá þarf að flytja inn
    fleiri útlendinga til að byggja þær íbúðir og þá þarf enn fleiri
    útlendinga o.s.frv. Það er ekki hægt að reka hagkerfi eins og
    píramídasvindl. Á einhvern hátt tókst okkur hérna áratugum saman að byggja
    blokkir, brýr, vegi, göng, virkjanir o.s.frv. án þess að þurfa að flytja
    inn allt vinnuaflið. Og það er áhyggjuefni að á sumum stöðum sé farið að
    ganga á lagið, að það sé jafnvel einn íslenskur maður með menntun á því
    sviði sem þar er, iðnmenntun til að mynda, og svo séu allir hinir
    <ns:bjalla/> innflutt vinnuafl og Íslendingarnir sem sækja um vinnuna fá
    hana ekki af því að það er einfaldara eða ódýrara að ráða útlendinga í
    störfin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>