<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T15:58:42" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:08:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T15:58:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla að leggja örfá orð í belg hvað varðar þessa
    tillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda. Ég hef nú flett þessu
    aðeins og mér sýnist óhætt að segja að þegar maður flettir þessu bara
    hratt og les fyrirsagnir og reynir að átta sig á því hvað hér er um að
    ræða þá kemur mér í huga að þetta er allt varðað góðum ásetningi, engin
    spurning. Það hefur reyndar lengi verið þannig og það hefur líka verið
    þannig í Evrópu í hverju landinu á fætur öðru að innflytjendastefnan er
    öllsömul vörðuð góðum ásetningi, góðum fyrirætlunum. Það er kannski
    einmitt gallinn. Menn hafa ekki tekið raunverulega á þessum vandamálum sem
    fylgja stórauknum fjölda innflytjenda í þessum löndum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér sýnist einnig þegar ég lít yfir þetta hratt að þessum
    fjármunum sem þarna er verið að verja til hinna ýmsu stofnana — allt saman
    eru þetta að mörgu leyti góð mál og varla hægt að finna sérstaklega að
    einhverjum ákveðnum liðum hér. Ég ætla aðeins, með leyfi frú forseta, að
    lesa upp nokkrar fyrirsagnir:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/pdf/158/s/0102.pdf-->

    <ns:mgr>„Notendaúttekt á gæðum kennslu í íslensku fyrir
    fullorðna.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Seinna:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Markmið: Íslenska verði samskiptamálið á Íslandi […]“.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Já, þetta er alveg frábær hugmynd og ég styð hana,
    o.s.frv.:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Uppbygging fjölbreyttrar og árangursríkrar upplýsingaþjónustu
    […]</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fræðsluhlutverk Vinnumálastofnunar verði eflt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Lýðræðisþátttaka og lýðræðisfræðsla.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Opinber störf aðgengileg fyrir alla.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Stuðningur við geðheilbrigði flóttafólks með sálrænum
    stuðningi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tryggt aðgengi flóttafólks að gagnreyndri meðferð við
    áfallastreituröskun.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er allt hið besta mál. Þetta er svolítið orðagjálfur, frú
    forseti. Maður fær pínulitla svona tilfinningu fyrir því að þarna sé nú
    verið að reyna að koma til móts við einhverjar kröfur um eitthvað sem menn
    vita ekki nákvæmlega hvernig þeir eiga að fara að. Þess vegna eru settar
    15 milljónir hingað, 100 milljónir þangað, 30 þangað, og þið fáið hérna 20
    til að gera þetta. Og hvað gerist? Þetta er, eins og ég hef oft séð af því
    að ég hef unnið í kerfinu í áratugi, dreifing fjármuna til hinna ýmsu
    stofnana sem bætast við rekstrargrunn þeirra. Svo gera þeir eitthvað, gefa
    út bækling eins og einhver nefndi áðan eða eitthvað annað og eru þar með
    búnir að uppfylla sínar skyldur samkvæmt þessari áætlun. Því miður, frú
    forseti, lítur þetta svolítið út eins og yfirborðskennt fálm. Ég er ekki á
    móti þessu, hæstv. ráðherra, en við þurfum bara að taka öðruvísi á þessum
    málum. Þetta má alveg vera með, ég er ekki á móti þessu. En við þurfum
    auðvitað að taka á þessum málum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég starfaði í lögreglunni í áratugi, fór erlendis nokkrum sinnum
    til að hitta lögregluforingja annars staðar, og hvað var þeirra helsta
    verkefni, frú forseti? Ekki núna nýlega, fyrir 20 árum, herra forseti, og
    jafnvel lengra síðan. Hvað var þeirra helsta verkefni? Innflytjendamál
    alltaf hreint, ekki helsta verkefnið heldur líka í öðru sæti og í þriðja
    sæti. Hvað þurfum við að gera í þessum málum, frú forseti? Hvað er
    augljóst að við þurfum að gera? Í fyrsta lagi, frú forseti: Við erum
    komnir með of mikið af innflytjendum nú þegar á Íslandi til að geta ráðið
    sæmilega við það verkefni að gera það sem þessi áætlun miðar að, þ.e. að
    hér verði áfram töluð íslenska, að við höldum í íslenska menningu og þetta
    samfélag verði íslenskt, svona til nánustu framtíðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi, frú forseti, erum við að flytja inn og samþykkja að
    hingað komi mikill fjöldi af fólki sem hefur allt öðruvísi bakgrunn en við
    eigum að venjast og er ekki að aðlagast og vill jafnvel ekki aðlagast,
    herra forseti. Við eigum að taka stjórn á þessum málum. Við eigum ekki að
    láta þetta hellast yfir okkur. Við eigum að hafa val um það hverjir koma
    hingað og eigum að stjórna því til að geta verndað okkar litla og fámenna
    samfélag. Við eigum að setja mörkin. Við eigum að gera kröfur, herra
    forseti. Við eigum ekki að vera lítil í okkur. Við eigum að stjórna. Við
    megum ekki missa tökin á þessu. Ef hingað koma einhverjir óknyttamenn sem
    ekki aðlagast íslensku samfélagi þá eigum við að brottvísa þeim, ekki
    eftir að hafa farið í gegnum dómskerfið í fjögur ár, við eigum að gera það
    strax. Við eigum að gera kröfur. Hvað varðar ríkisborgararétt og hvað
    varðar kröfu um íslensku — að sjálfsögðu. Ég veit um fólk í Svíþjóð sem
    fær ekki vinnu ef það kann ekki sæmilega sænsku. Það er bara sjálfsögð og
    eðlileg krafa. Hér kemur maður hvergi í þjónustu nema tala ensku, næstum
    því hvergi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við erum að missa tökin á þessu, herra forseti, ef við viljum
    vernda íslenska tungu og þar með menningu okkar. Við eigum að velja þá sem
    hingað koma. Við eigum að velja fólk sem getur aðlagast íslensku
    samfélagi. Við eigum að brottvísa þeim sem brjóta af sér strax, ekki eftir
    fjögur eða fimm ár. Við eigum ekki að fá hingað fólk sem er líklegra til
    að fara beint á velferðarkerfið. Dæmi eru um að sumir hópar, stórir hópar
    jafnvel, fari beint hérna á velferðarkerfið og mjög lítill hluti þess
    fólks hefur nokkurn hug á því að fá sér venjulega vinnu, ekki neinn áhuga
    á því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Herra forseti. Ríkisborgararétturinn er að mínu mati heilagur
    réttur. Við eigum einnig að gera skýlausar og harðar kröfur í þeim efnum
    að enginn fái hér ríkisborgararétt nema að uppfylla einhver
    lágmarksskilyrði, eins og er í lögunum núna. Við eigum að herða þær
    kröfur. Við eigum að gera skilyrðislaust kröfu um að þeir sem fá
    ríkisborgararétt skilji íslensku og tali hana svo skiljanlegt sé. Við
    eigum að lengja í þeim tíma þar til fólk á að geta fengið ríkisborgararétt
    og við eigum að gera alvöru kröfur vegna þess að þetta er okkar heilagasti
    réttur. Þeir sem byggðu þetta land — ef þú kemur sem gestur og vilt taka
    þátt í samfélaginu þá er það auðvitað sjálfsagt að þeir sem fyrir eru hafi
    eitthvað um það að segja hver hans viðhorf eru til þess samfélags sem hann
    ætlar að ganga inn í, herra forseti. Að sjálfsögðu eigum við að gera
    þessar kröfur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Um leið og ég endurtek það sem ég sagði hvað varðar lögregluna,
    sem ég þekki kannski hvað best til — að ég tel að við séum á ákveðnum
    krossgötum, Íslendingar. Við erum á þessari leið, herra forseti, að vera
    komin nánast í fótspor nágrannaþjóða sem berjast mjög mikilli baráttu til
    að ná tökum á bæði glæpagengjum og mikilli misnotkun á opinberum kerfum.
    Við megum bara ekki fara þangað. Þess vegna verðum við, eins og ég sagði,
    herra forseti, að gera kröfur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>