<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T16:09:00" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:14:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:09:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að lýsa yfir ánægju með
    þessa framkvæmdaáætlun sem við fjöllum um hér í dag. Það hefur verið
    áhugavert að hlusta á þessa umræðu, ég hef verið að reyna að greina hvort
    fólk í minni hlutanum sé almennt ánægt með að hér sé lögð fram
    framkvæmdaáætlun eða ekki. Það er svona ákveðnum áskorunum lýst sem
    einmitt er tekið á í framkvæmdaáætluninni og síðan er lögð lykkja á leið
    sína kannski til að ræða um aðgerðir á landamærum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En það eru tvö verkefni sem íslensk stjórnvöld standa frammi
    fyrir. Annars vegar það sem kemur að landamærunum og þar hefur
    ríkisstjórnin heldur betur látið verkin tala, að fella úr gildi sérstakar
    íslenskar reglur, 18 mánaða regluna. Farið er að brottvísa þeim sem fremja
    glæpi hér á landi. Við höfum lagt fram nýja atvinnustefnu einmitt til að
    stuðla að því að við fjölgum störfum í háframleiðnigreinum en flytjum ekki
    bara inn erlent vinnuafl sem skapar ekki ákveðinn hagvöxt hér á landi, til
    að stuðla að því að við séum með sjálfbæran vöxt í hagkerfinu. Þetta eru
    allt skref sem þessi ríkisstjórn hefur verið að stíga á síðastliðnum
    árum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En þá er það hitt verkefnið. Á síðustu árum hefur verið metfjölgun
    erlendra íbúa eða innflytjenda á Íslandi, hæsta hlutfall innan
    OECD-ríkjanna. Þessi hópur býr hér á Íslandi, starfar hér á Íslandi og hér
    er svolítið reynt að mála upp þá mynd að þetta séu allt einhvers konar
    glæpamenn en það er auðvitað bara örlítið brot þeirra innflytjenda sem
    koma til Íslands sem fremur glæpi. En verkefnið er að það er ekki nóg að
    læra af Norðurlöndunum, nágrannaríkjunum, þegar kemur að landamærunum
    okkar, þegar kemur að því að tryggja að við séum ekki með séríslenskar
    reglur á þeim. Við þurfum líka að læra af þeim hvað gerist ef stjórnvöld
    standa sig ekki í að vinna að því að innflytjendur nái að aðlagast
    íslensku samfélagi. Hér er framkvæmdaáætlun sem snýr einmitt að þessu, að
    taka á þessum helstu þáttum sem eru ráðandi í því hvort innflytjendur nái
    að verða hluti af íslensku samfélagi eða hvort þeir verði einhvers konar
    sérmenningarhópur sem skilur ekki tungumálið, að börnin taki ekki þátt í
    íþrótta- og tómstundastarfi og að þeir taki ekki þátt í samfélagslegri
    umræðu og lýðræðislegum kosningum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér er verið að leggja fram metnaðarfulla áætlun til að taka á
    þessum verkefnum og ég held að við ættum hér á Alþingi að sameinast í því
    að læra af nágrannaríkjunum okkar og ekki gera sömu mistök. Ekki halda að
    það nægi að tala bara um vandamálið, að gera lítið úr öllum aðgerðum sem
    snúa að því að tryggja að innflytjendur aðlagist íslensku samfélagi, og
    það er einmitt það sem inngilding þýðir, þ.e. hvaða aðgerðum stjórnvöld
    ætla að beita til að stuðla að því að innflytjendur aðlagist íslensku
    samfélagi. Það er ekki neikvætt hugtak í þessu sambandi. Það er einmitt
    til að tryggja samheldni í samfélaginu, að hér sé ekki ólík menning sem
    fari jafnvel að skella saman eins og við sjáum víða á Norðurlöndunum, og
    fólk nái ekki að eiga samskipti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En eins og ég segi, ég fagna þessari framkvæmdaáætlun. Ég fagna
    þeim aðgerðum sérstaklega sem snúa að börnum og ungmennum því að þau sem
    eru komin hingað til lands með börn og ungmenni eru náttúrlega þau sem eru
    að setjast hér að. Það eru börn sem ganga þá í íslenska skóla, eignast
    íslenska vini og við þurfum að stuðla að því að þau fari í gegnum sama
    kerfi og íslensku börnin okkar. Íþrótta- og tómstundastarf er t.d. miklu
    stærri hluti af daglegu lífi íslenskra barna en víða í öðrum löndum. Það
    sýna þátttökutölur varðandi þetta. Því miður er það þannig að þátttaka
    barna af erlendum uppruna er talsvert slakari þegar kemur að þátttöku í
    íþrótta- og tómstundastarfi. Ég fagna því að hér eigi að stíga markviss
    skref til að stuðla að þessu. Það þarf líka að vinna með foreldrunum til
    að þeir séu meðvitaðir um þessa íslensku hefð, þessa íslensku menningu og
    mikilvægi íþrótta- og tómstundastarfs. Ég fagna því líka sem snýr að
    tungumálakennslunni. Íslenskan er lykillinn að samfélaginu okkar og
    lykillinn, einmitt ef við horfum aftur á fjölskyldurnar með börnin, að því
    að foreldrarnir geti tekið þátt í lífi barnanna sinna, skólasamfélaginu,
    að þau skilji tungumálið. Þannig að ég fagna því að hér eigi að stíga
    markviss skref í þessum efnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég geri ráð fyrir að nefndin muni vinna með þessar tillögur í
    sinni umfjöllun en mér finnst áhugavert hvernig umræðan er hér einhvern
    veginn að reyna að draga það upp að hér séu allir sem koma til landsins
    annaðhvort glæpamenn eða að við þurfum að kortleggja alla glæpatíðni
    erlendra innflytjenda. Ég fagna því sem hæstv. ráðherra boðaði þó að það
    sé eðlilegt að líkt og á Norðurlöndunum og í kringum okkur séu unnin
    heildstæð mælaborð sem snúa að því hvernig innflytjendum sem koma til
    landsins gangi að aðlagast samfélaginu. Vissulega er það hvort þeir séu að
    fremja glæpi einn hluti af því en þetta eru miklu víðtækari mælaborð.
    Þetta snýst líka um hlutfall þeirra sem eru með atvinnu, hlutfall þeirra
    sem læra tungumál, þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi, þátttöku í
    lýðræðislegum kosningum og fleira. Þannig að við eigum að hafa áhuga á
    því, metnað og vilja til að tryggja að þeir sem koma hingað til landsins
    aðlagist íslensku samfélagi, taki virkan þátt, læri tungumálið, taki þátt
    í þeim hefðum og venjum sem við höfum hér á landi. Þar eru börnin
    sérstakur lykill og því fagna ég þessari framkvæmdaáætlun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>