<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T16:14:34" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:22:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:14:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir áhugaverða umræðu sem
    hefur átt sér hér stað og ég ætla nú að fara aðeins inn á þá hluta málsins
    sem hafa fengið talsverða athygli í umræðunni. Ég tek að sjálfsögðu undir
    það að íslenskan er lykillinn að samfélaginu en mér finnst ég líka vera að
    hlusta á einhvers konar markmið og ræður um eitt og hið sama og við höfum
    hlustað á núna í dálítið mörg ár, líklega áratug í það minnsta, og við
    frekari skoðun á málinu sýnist manni því miður svona við fyrstu sýn að
    þetta sé örlítið meira af því sama. Það er að við erum með fullt af
    fallegum orðum um markmið, um mikilvægi íslenskunnar og þess að
    innflytjendur hér læri íslensku.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við erum kannski með eitthvað aðeins minna af því, herra forseti,
    hvernig við ætlum að eiga við þann hóp innflytjenda sem hefur bara akkúrat
    engan áhuga á að læra íslensku. Við verðum að vera hreinskilin hér í
    þessum sal hvert við annað. Það er allstór hópur hér í samfélaginu sem
    hefur akkúrat engan áhuga á að læra íslensku. Þeim standa til boða
    íslenskunámskeið og hafa staðið núna um alllangt skeið víðs vegar um
    landið, bæði í framhaldsskólum, ýmiss konar þekkingarmiðstöðvum o.s.frv.,
    og hlutfallið sem hefur sótt sér það nám er kannski bara alls ekkert
    ásættanlegt og hefur lítið verið að þokast upp undanfarin ár.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá er eðlileg spurning sú, herra forseti: Með hvaða hætti er þessi
    framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda að fara að ná utan um það
    verkefni? Það er stóra verkefnið. Ég hygg að þeir innflytjendur sem hafa
    einlægan áhuga á að læra íslensku, og ég hef kynnst mörgum svoleiðis og
    unnið með mörgum þannig, biðji jafnvel bara vinnufélagana um aðstoð auk
    þess að sækja einhver námskeið. Þeir biðja mann um að tala við sig á
    íslensku, þó að það þurfi auðvitað að nota einhver miðlunartungumál þar á
    milli oft og tíðum, ensku í langflestum tilfellum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En svo er bara hinn hópurinn og ég hef unnið með mörgum, herra
    forseti, og á verksvæði með mörgum, herra forseti, sem hafa akkúrat engan
    áhuga á að læra íslensku. Og þá er ég ekki einu sinni farinn að tala um
    þau störf þar sem íslenska ætti að vera skilyrði, þar sem ætti bara að
    vera hreinlega að mati þess sem hér stendur íslenskupróf einhvers konar
    til að prófa eða árangursmeta einhverja lágmarksfærni í íslensku. Þá er ég
    að tala um vinnustaði eins og sjúkrahús, heilsugæslu, leikskóla,
    grunnskóla, dvalarheimili, hjúkrunarheimili og ég gæti eflaust haft þennan
    upplestur eitthvað lengri. En eftir sem áður stendur þeirri spurningu
    ósvarað í þessari framkvæmdaáætlun hvernig við ætlum að fást við þann hóp
    sem hefur alls ekki neina fyrirætlan um að læra tungumálið. Og hugsanlega
    berum við sem þjóð þar nokkra sök því að við erum jú flest hver fljót að
    bregða fyrir okkur enskunni í sjoppunni eða búðinni eða hvar sem við erum
    stödd. Við erum kannski ekki að ýta nógu þétt bara sem almenningur undir
    það að fólk tileinki sér íslenskuna. Fyrir vikið má kannski segja að þetta
    sé svolítið, eins og ég sagði áðan, meira af því sama, fullt af fallegum
    orðum. Og það er talað um mælaborð sem er mikið tískuorð þessi misserin.
    Þá veltir maður fyrir sér: Er ástæða til að ætla að það mælaborð sýni
    einhverja aðra niðurstöðu en til að mynda Danir fengu út úr sinni
    allviðamiklu rannsókn á því hvernig ólíkum hópum innflytjenda reiðir af í
    dönsku samfélagi? Það kann að vera einhver stigsmunur en eðlismunur er það
    varla. Síðan hefur hugtakið inngildingu borið aðeins á góma hér. Ég ætla
    svo sem ekki að gera það að sérstöku umfjöllunarefni að öðru leyti en því
    að það er ákaflega mikilvægt að allir sem taka sér þetta hugtak í munn
    geri sér grein fyrir hvað það þýðir því að oft og tíðum þykir mér þetta
    hugtak vera notað rangt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta þýðir að við ætlum að aðlaga okkur, herra forseti. Ég sæi
    það gerast, svo að við tökum eitthvert dæmi í stærra samhengi, ef hér yrðu
    einhverjar hamfarir og 200.000 Íslendingar flyttu til Frakklands, að það
    yrði sérstakt inngildingarátak í Frakklandi fyrir Íslendinga. Mér er það í
    það minnsta verulega til efs. Aðalatriðið hlýtur að vera, sama hver er að
    flytja, til hvaða lands, að viðkomandi reyni að aðlaga sig því landi sem
    hann kaus að flytja til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo langar mig hér, bara rétt í lokin, að minna á að við þurfum
    ekki einu sinni að finna upp hjólið til að fara í stórátak í þessum
    málaflokkum. Geri ég þá hér, eins og hefur verið gert hér nokkrum sinnum,
    að vísa til danskra jafnaðarmanna því við höfum nú stundum, til að mynda
    þingmenn úr þeim flokki sem ég er í, Miðflokknum, fengið á okkur þegar við
    höfum gagnrýnt útlendingastefnu hér undanfarin ár alls konar orð, uppnefni
    og stimpla, sem ég hygg þó að séu eitthvað að minnka því að ég held að
    málflutningur Miðflokksins sé farinn að ná í gegn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að almenningur sjái orðið að það sem við vorum að segja
    fyrir nokkrum árum, eða eiginlega alveg frá 2017, 2018, hefur allt staðist
    tímans tönn og við erum í hænuskrefum að þoka umræðunni á einhvern þann
    veg að hún sé meira í takt við raunveruleikann. Ég held nefnilega að það
    sé ekki hægt að segja að þeir sem tala með þeim hætti að það sé hægt að
    finna einhver tengsl við danska jafnaðarmenn séu komnir langt út fyrir
    einhverjar línur í sinni umræðu, langt í frá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þeir eru einfaldlega að reyna, herra forseti, og það kom hér fram
    í einhverri ræðunni, þeir eru einfaldlega að reyna einmitt að koma í veg
    fyrir að Íslendingar og íslensk þjóð geri sömu mistökin og nágrannaþjóðir
    okkar hafa gert á undanförnum árum og eru núna að súpa seyðið af heldur
    horfi miklu frekar til þess hvað þeir gerðu, hverju þeir eru að breyta og
    ég ítreka aftur, herra forseti, að horfa kannski sérstaklega til Dana í
    þeim efnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En eftir stendur þessi spurning: Hvernig tekur þessi
    framkvæmdaáætlun á þeim þúsundum innflytjenda á Íslandi sem hafa ekki sýnt
    enn þá í það minnsta neinn vilja eða áhuga á að læra íslensku?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>