<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-22T16:23:16" skst="LE" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:28:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:23:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um
    breytingu á höfundalögum. Frumvarpið var lagt fram á síðasta
    löggjafarþingi en það tókst ekki að ljúka þinglegri meðferð og er
    frumvarpið því lagt fram að nýju óbreytt. Með frumvarpinu er lagt til nýtt
    ákvæði þar sem hámarksrefsing fyrir stórfelld og ítrekuð
    höfundarréttarbrot varði allt að sex ára fangelsi, en almennt refsiákvæði
    í dag kveður á um tveggja ára hámarksrefsingu. Með þyngri viðurlögum er
    lagt upp með að rannsókn brota fái meira vægi. Þau geti færst til
    miðlægrar deildar lögreglu og hægt verði að vinna slík mál í alþjóðlegu
    samstarfi. Það hefur færst í aukana hér á landi að höfundarréttarvörðu
    efni sé streymt og því miðlað með ólögmætum hætti, einkum í gegnum
    IP-sjónvarp og myndþjóna. Á árinu 2024 kom fram í könnun Félags rétthafa í
    sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði (FRÍSK) að um 30% svarenda sögðust hafa sótt
    eða streymt höfundarréttarvörðu efni og hlutfallið var enn hærra í hópi
    ungra svarenda, eða 59%. Þessar niðurstöður voru síðan staðfestar í nýrri
    könnun FRÍSK frá því í sumar þar sem tæplega þriðjungur Íslendinga
    viðurkenndi að nýta sér ólöglegt streymi og niðurhal. Áhrif
    sjóræningjastarfsemi með höfundarréttarvarið efni eru því veruleg. Helst
    má nefna gríðarlegt tekjutap efnishöfunda og rétthafa sem getur dregið úr
    framleiðslu á sjónvarpsefni og grafið undan kvikmynda- og
    sjónvarpsframleiðslu hér á landi. Það hefur verið áætlað að tekjutap vegna
    ólöglegs streymis á sjónvarpsefni sé um 4 milljarðar kr. á ári. Með
    ólöglegu streymi eru notendur einnig að stefna netöryggi sínu í hættu þar
    sem efnið er oft sótt á ótrygga miðla og myndþjóna ásamt því að
    sjóræningjastarfsemi sem þessi er iðulega notuð til þess að fjármagna
    skipulagða glæpastarfsemi. Bæði Interpol og Europol hafa sýnt fram á
    tengsl hugverkaþjófnaðar við glæpahópa sem fjármagna aðra alvarlega glæpi
    með þessari leið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Liður í viðbrögðum stjórnvalda er að leggja
    til hækkun á hámarksrefsingu höfundalaga þannig að hún endurspegli betur
    alvarleika stórfelldra brota gegn höfundalögum og sé einnig í samræmi við
    refsingu fyrir samsvarandi brot á Norðurlöndum og í Evrópu. Það er rétt að
    halda því til haga að áhersla frumvarpsins liggur í stórfelldum og
    ítrekuðum brotum og eðli máls samkvæmt falla almennir neytendur sem
    streyma eða kaupa aðgang að ólögmætu efni yfirleitt ekki undir
    skilgreiningu á stórfelldri brotastarfsemi. Sérstaklega er verið að horfa
    til aðila sem hlaða upp og dreifa efni eða selja búnað sem veitir aðgang
    að höfundarréttarvörðu efni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 54. grein höfundalaga
    þannig að við ákvæðið bætist ný málsgrein þar sem tilgreind er sex ára
    hámarksrefsing fyrir stórfelld eða ítrekuð brot gegn lögunum. Við mat á
    því hvort um stórfellt brot sé að ræða ber að líta til þess hvort
    háttsemin hafi verið í atvinnuskyni, sé sérstaklega umfangsmikil, hafi
    haft verulegt fjárhagslegt tjón í för með sér fyrir rétthafa, hvort hinn
    brotlegi hafi haft ávinning af háttseminni eða hvort hún hafi verið
    skipulögð eða hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. Jafnframt þessu hef ég
    þegar sett á fót starfshóp sem hefur það hlutverk að leggja fram tillögur
    til að sporna enn frekar við sjóræningjastarfsemi við höfundarréttarvarið
    efni og hópurinn mun skila af sér tillögum fyrir lok ársins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Nú eru að alast upp kynslóðir sem tengja ekki
    við að ólöglegt streymi eða niðurhal sé þjófnaður. Það hafa kannanir sýnt
    okkur. Það er því ljóst að þar er þörf á vitundarvakningu til að auka
    skilning á lagalegum og samfélagslegum afleiðingum höfundarréttarbrota. Um
    leið er afar mikilvægt að bæði löggjöf og viðbrögð löggæsluyfirvalda
    endurspegli alvarleika þess að deila höfundarréttarvörðu efni á
    stórfelldan hátt og gera það aðgengilegt í stórum stíl. Það er aðalmarkmið
    þessa frumvarps.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til
    hv. allsherjar- og menntamálanefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>