<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T16:28:25" skst="JúlÓ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:30:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:28:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Það
    má vel vera að þessi breyting sé til hins betra, að það skipti máli að
    standa vörð um innlenda menningarstarfsemi og framleiðslu en ég velti
    fyrir mér svona þyngingu á dómum að skoða hana í samhengi annarra dóma.
    Til að mynda er hámarksrefsing fyrir hefndarklám allt að fjögur ár, fyrir
    kynferðislega áreitni gagnvart eigin barni allt að fjögur ár, framleiðslu
    á barnaklámi sex ár, stafræn brot, hver sem í heimildarleysi verður sér
    úti um aðgang að gögnum eða forritum annarra sem geymd eru á tölvutæku
    formi, eitt ár. Hver sem brýtur gegn friðhelgi einkalífs annars, eitt ár.
    Ef maður hefur fé af öðrum með því að hóta eða beita hann eða nána
    vandamenn hans líkamlegu ofbeldi, sex ár, og brot gegn nálgunarbanni, eitt
    ár. Er rétt forgangsröðun að verja tíma þingheims í þetta mál þegar þarna
    er verið í sumum tilfellum að hækka hámarkslengd dóma, hámarkslengd
    refsingar, umfram aðra alvarlega glæpi sem manni finnst að ættu kannski að
    vera með lengri dóma sjálfir?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>