<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-22T16:30:13" skst="LE" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:32:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:30:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Varðandi það hvort rétt sé að eyða tíma
    þingheims í þetta frumvarp þá erum við a.m.k. ekki að gera það í dag
    sýnist mér á þingsalnum. En við erum að horfa til þess, eins og ég nefndi
    í framsögunni, að hækka þetta til samræmis við það sem gerist í
    nágrannalöndum okkar, Danmörku og Svíþjóð, þar sem þetta eru sex ár, sjö
    ár í Frakklandi og svo mætti áfram telja. Þau dæmi sem hv. þingmaður tekur
    má alveg eyða talsverðri umræðu í en hér erum við fyrst að miða við
    sambærilega hluti í okkar refsilöggjöf. Það liggja töluvert þyngri
    refsingar eða refsiheimildir vegna brota fyrir eignaspjöll á áþreifanlegum
    eignum og hér er um eign fólks að ræða. Okkur hættir stundum til að
    nálgast höfundarétt, vegna þess að það er óáþreifanleg vara oft og tíðum,
    sem eitthvað sem skiptir minna máli en skópar, ísskápur eða bíll. Hér er
    bara verið að gæta samræmis þar á milli og líka að tryggja að málið geti
    fengið betri rannsókn hjá lögreglu. Með þessu skapast möguleikar lögreglu
    til að vera í samskiptum við erlend lögregluyfirvöld og þetta er mál sem
    er oft tengt alþjóðlegri glæpastarfsemi og þess vegna er full ástæða til
    að stíga þetta skref. Ég nefndi líka hversu hátt tjónið af þessu er á
    hverju ári og það er verulegt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>