<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T16:32:25" skst="JúlÓ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:33:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:32:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er
    alveg rétt að það skiptir máli að standa vörð, eins og ég sagði í fyrri
    ræðu minni, um innlenda menningarstarfsemi og framleiðslu og það er vel.
    Ég skil það líka að þetta er málaflokkur ráðherrans og kannski ekki þau
    brot sem ég taldi upp, en manni finnst þetta sérstakt í samhengi hlutanna
    þegar um er að ræða refsingar við öðrum glæpum og auðvitað þurfum við
    alltaf að meta refsingar í samhengi við refsingar við öðrum glæpum. Telur
    hæstv. ráðherra að ríkisstjórnin áformi að fara í breytingar á dómum fyrir
    annars konar glæpi, fyrir alvarlega ofbeldis- eða kynferðisbrotaglæpi, til
    þess að refsing við slíku broti sem um ræðir hér virðist kannski í meira
    samræmi við refsingar fyrir aðra alvarlega glæpi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>