<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-22T16:33:45" skst="LE" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:35:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:33:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla að gera athugasemd við það hjá hv.
    þingmanni að þetta er ekki eingöngu það, þó að það skipti miklu máli að
    standa vörð um menningarstarfsemi eða menningarverðmæti. Þetta snýst
    auðvitað um þann sjálfsagða rétt að höfundar sæti því ekki að það sé verið
    að stela af þeim vöru frekar en af öðrum sem stunda viðskipti og eiga
    hana. Það er því réttlætismál að það sé samræmi þarna á milli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað varðar refsiramma í öðrum málaflokkum hjá ólíkum ráðherrum þá
    held ég að ýmislegt komi þar til greina og ég held að ráðherrar séu með
    vakandi auga fyrir því. Við erum líka með réttarfarsnefnd sem gætir að því
    mjög víða að það sé samræmi á milli refsiramma. Hér er eingöngu verið að
    ræða um það að bera saman efnislega vöru og óefnislega vöru og að viðurlög
    við þjófnaði á því séu lögð að jöfnu. En ég tek það aftur fram, af því að
    mér finnst það líka skipta máli, að þetta beinist ekki gegn þeim
    einstaklingum sem tilfallandi hafa verið að hala niður kvikmyndum, myndum,
    fá sér ódýra áskrift að íþróttakappleikjum eða annað. Ég held að gegn því
    sé miklu betra að við eigum bara almenna umræðu um að þetta sé réttur
    einhvers, þetta sé eign einhvers og að það verði gert með
    vitundarvakningu. En það er full ástæða til þess, þegar þetta er í mjög
    umfangsmiklum mæli, að standa vörð um þetta og gefa þau skilaboð að þetta
    verði ekki liðið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>