<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T16:35:58" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:37:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:35:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans yfirferð. Ég er
    ekki á mjög ólíkum slóðum. Nú liggur fyrir og kom fram í máli hæstv.
    ráðherra, bæði í yfirferðinni og eins í andsvörum hér, að þetta er mál til
    samræmingar við laga- og refsiramma nágrannalandanna. Þessi sex ár miðast,
    eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra, við stórfelld og ítrekuð brot.
    Refsirammi minni háttar brota er þá tvö ár, hygg ég. En engu að síður,
    þegar þessi refsirammi er skoðaður í þessu samhengi, sem hér var einmitt í
    orðræðunni rétt í þessu, þá skýtur svolítið skökku við að kynferðis- og
    ofbeldisbrot skuli vera nokkurn veginn á pari, af því að þau eru líka, svo
    það sé sagt, hæstv. ráðherra, sérstaklega hvað varðar kynferðisbrot, líka
    mjög oft tengd skipulagðri glæpastarfsemi. Þar erum við að fjalla um ekki
    ósvipaðan refsiramma engu að síður. Þannig að ég spyr hæstv. ráðherra í
    því ljósi, þó að hér sé um samræmingarvegferð að ræða — og ég get haft
    nokkurn skilning á því að það megi kannski ekki vera gríðarlegur munur
    milli landa sem eru mjög nærri og líkt þenkjandi, eins og er nú í tísku að
    segja í dag, er kannski bara annar málaflokkurinn þá vanmetinn eða er hinn
    ofmetinn? Þetta eru gildishlaðnar spurningar til hæstv. ráðherra, ég átta
    mig á því. Er ekki eitthvað brogað við það að ítrekuð deiling á efni sem
    þú átt ekki, sem vissulega á að vera refsivert, skuli vera komin á par við
    það sem okkur þykir kannski hvað ljótast í okkar samfélagi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>