<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-22T16:37:59" skst="LE" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:39:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:37:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Jú, auðvitað á það alltaf að vera til skoðunar
    hver refsiramminn er í einstökum málaflokkum og það er m.a. hlutverk hv.
    þingmanns að halda því til haga og honum er frjálst að leggja slíkar
    tillögur til. Hér er ég eingöngu að ræða þetta. Miðað við núverandi stöðu
    er það þannig að rannsókn brotanna liggur eingöngu í því umdæmi þar sem
    brotið er framið og þau umdæmi hafa sjaldan sérþekkingu á þessum málum.
    Þannig að nú erum við að tryggja með þessu frumvarpi að það séu til fleiri
    rannsóknarúrræði. Að það verði t.d. heimil afhending fjarskiptagagna sem
    og samstarf við Interpol og Europol og þetta séu brot sem verði rannsökuð
    af miðlægri rannsóknardeild lögreglu þar sem safnast hefur meiri sérhæfing
    til. Svo ég vísi nú efnislega í ummæli sænska menningarmálaráðherrans þá
    segir hann að það sé orðið stórt vandamál fyrir kvikmynda- og
    sjónvarpsiðnaðinn í Svíþjóð að peningarnir, sem ættu að fara til
    fjölmiðlafyrirtækjanna eða rétthafanna, fari hins vegar beina leið í
    vasann hjá glæpamönnum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>