<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T16:39:45" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:41:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:39:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mig langar
    að nota þessa seinni ferð mína hér til að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út
    í annað, sem er auðvitað ekki óskylt en af allt öðrum toga þó. Nú erum við
    að horfa upp á, með tilkomu gervigreindarinnar, ótrúlega hratt vaxandi
    færni gervigreindarinnar til að umbreyta efni með þeim hætti að það
    virðist ekki eiga annan uppruna en bara hjá gervigreindinni sjálfri en er
    kannski í rauninni efni sem er höfundaréttarvarið. Gervigreindin virðist
    vera orðin ofboðslega fær í að fara akkúrat nógu langt, hvort sem það
    varðar tónlist eða myndbrot eða eitthvað slíkt, til þess að vera komin með
    nógu margar breytur til að vera ekki lengur það sem kallað var hér áður
    stuldur á höfundarétti. Við þekkjum meira að segja að íslensk mál hafa
    verið höfðuð vegna laga sem erlendir tónlistarmenn skrifuðu á sig. Þá er
    notast við einhvers konar viðmiðun þar sem ákveðinn fjöldi hljóma og annað
    slíkt er notað til að bera saman upprunalega efnið og svo það efni sem
    talið er vera stolið, afleiðan, og það er einhver formúla notuð til að
    meta hvort það sé stuldur eða ekki. Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér
    að við ráðum við þetta með þessari gríðarlegu tækni, því að hún virðist
    vita nákvæmlega hversu langt hún þarf að ganga til að vera komin, ef svo
    má segja, í var gagnvart lögunum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>