<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-22T16:41:48" skst="LE" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:43:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:41:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Já, þetta er bara mjög áhugaverð spurning.
    Þarna finnst mér nú ég og þingmaðurinn vera að nálgast það að það skiptir
    nefnilega máli að verja hérna eignarrétt höfunda með einhverjum hætti. Við
    erum vissulega að glíma við brjálæðislega hraða og fullkomna tækni núna,
    gervigreindina, sem er að þróast. Í henni eru jákvæðir hlutir en það eru
    líka neikvæðir hlutir sem okkur ber að varast og við boðum lög gegn vissum
    þáttum hennar eftir því sem okkur tekst það, m.a. gagnvart djúpfölsunum á
    lifandi einstaklingum, sem getur haft hörmulegar afleiðingar í för með
    sér, en líka gagnvart tónlist, myndlist, kvikmyndum og fleiru. Við
    fylgjumst með þeirri alþjóðlegu þróun sem þar er í gangi. Það er alveg
    rétt að gervigreindin getur nefnilega farið út á ystu nöf án þess að um
    beinan stuld sé að ræða, þó að hann sé vissulega óbeinn vegna þess að það
    má ekki gleyma því að getan til að búa til tónlistina er fengin með því að
    þessi fyrirtæki hafa oft á tíðum, og sennilega yfirleitt, hlaðið niður
    þessari músík ólöglega til að nýta sér sköpunarverk listamanna sem á undan
    komu og gera henni kleift að gera þetta. Ef hv. þingmaður horfði á Silfrið
    í gær var Andri Snær Magnason rithöfundur þar að lýsa því beinlínis
    hvernig eitt af þessum stóru tæknifyrirtækjum í Bandaríkjunum stal frá
    honum „Bláa hnettinum“ og frá ótal öðrum rithöfundum og bjó svo til
    einhverja afurð út úr því. Þetta á nú enn frekar að ýta undir vilja
    þingsins til þess að viðurkenna höfundarétt með því m.a. að samþykkja
    þetta frumvarp.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>