<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T16:44:10" skst="JúlÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 16:47:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T16:44:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="108">
      <ns:málsheiti>höfundalög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir
    svörin áðan. Ég vona að það misskiljist ekki að ég er vissulega sammála
    hæstv. ráðherra um mikilvægi þess að komið sé fram við óveraldlegar og
    óáþreifanlegar eignir eins og höfundaréttarvarin verk, af sama alvarleika
    og komið er fram við aðrar eignir og er þess vegna ekki á móti því að
    setja alvarlegri refsingu við því að stela slíkum eignum. En ég held að
    hinn almenni Íslendingur spyrji sig svolítið þegar kemur að refsingum sem
    við höfum hér á Íslandi fyrir mismunandi glæpi að þetta virðist oft ekki
    vera í miklu samhengi. Dómsmálaráðherra lagði á dögunum fram drög að
    frumvarpi um að þyngja refsingar fyrir kaup á vændi af börnum úr tveimur í
    fjögur ár af fangelsisvist. Manni finnst þetta svolítið skrýtið þegar
    maður lítur á það hvernig við erum að koma fram við svona alvarlega glæpi,
    að við leyfum því að líðast. Manni finnst það ekki vera nægilega alvarleg
    refsing fyrir svo alvarlega glæpi. Þess vegna er ég ekki að mæla
    sérstaklega gegn því frumvarpi sem hæstv. ráðherra er að leggja fram hér
    heldur kannski frekar að spyrja spurninga eins og: Hvernig erum við að
    forgangsraða málum hérna? Af hverju leggjum við ekki meiri áherslu á það
    að við séum raunverulega að refsa fólki fyrir alvarlega glæpi? Þegar
    Íslendingar sitja saman á kaffistofunni og ræða málin þá finna þeir bara í
    maganum að það er ekki rétt að taka svona léttlega á svo alvarlegum
    glæpum. Þess vegna spurði ég líka hæstv. ráðherra hvort það séu einhver
    frekari áform hjá ríkisstjórninni, því ríkisstjórnarborði sem hann situr
    við, að fara að einblína meira á þessi mál, að kanna hvort tilefni sé til
    þess að endurskoða hversu þungar refsingar eru á Íslandi við svo
    alvarlegum glæpum og hvort það þurfi ekki að líta á samhengi þess að hér
    er verið að leggja til að þyngja dóma fyrir alvarleg og ítrekuð
    höfundaréttarbrot, hvort við þurfum þá ekki að líta á önnur brot og
    uppfæra hvernig við metum þau og alvarleika þeirra.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>