<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T13:32:14" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:34:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:32:14">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="50">
      <ns:málsheiti>ástæða afsagnar mennta- og barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er fátt farið að koma mér á óvart þegar
    kemur að Flokki fólksins. Í frétt hjá Ríkisútvarpinu kemur loksins skýrt
    fram hvað varð til þess að þáverandi hæstv. menntamálaráðherra, Guðmundur
    Ingi Kristinsson, sagði af sér sem ráðherra. Hvernig hæstv. ráðherra
    stýrir sínum flokki og ræður og rekur þingmenn og ráðherra eins og henni
    einni sýnist kemur í raun engum við og ekki ætla ég að hafa skoðanir á
    því. Það sem verður samt að draga fram í sviðsljósið eru afskræmingarnar
    og blekkingaleikurinn sem ráðherrar þessarar ríkisstjórnar hafa boðið upp
    á þegar gengið er á eftir svörum í þessu máli og auðvitað fleirum. Nú er
    það skjalfest í skilaboði fyrrverandi aðstoðarmanns, sem er jafnframt
    eiginkona hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, að það voru valkyrjurnar
    sem ráku hv. þingmann og fyrrverandi ráðherra. Honum var hótað stríði ef
    hann myndi ekki hlýða og hann fékk ekki einu sinni að rita uppsagnarbréfið
    sjálfur. En hver hafa svör valkyrjanna verið? Hæstv. ráðherra, Inga
    Sæland, fullyrti í sjónvarpi allra landsmanna að þetta væri upplifun en
    ekki sannleikur. Hæstv. ráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, bætti við að
    honum þættu orð þingmannsins ekki svaraverð. Fyrst var það styrkjamálið,
    svo var skólastjóra hótað lögreglunni, fjölmiðlar sviptir styrkjum, annar
    menntamálaráðherra þurfti að segja af sér o.s.frv. Aldrei er gengist við
    einu né neinu en núna liggur þetta skýrt fyrir. Hvernig svarar hæstv.
    ráðherra fyrir þetta nú þegar allar upplýsingar eru uppi á borðum? Er
    þetta enn þá bara upplifun þingmannsins? Vill ráðherra biðja þingmanninn
    eða þjóðina afsökunar á <ns:bjalla/> að hafa sagt ósatt í beinni
    útsendingu? Í þessu húsi þarf að ríkja traust og trúverðugleiki,
    <ns:bjalla/> sér í lagi hjá ráðherrum í ríkisstjórn Íslands. Ég vitna í
    Kristrúnu Frostadóttur, hæstv. forsætisráðherra: <ns:bjalla/> „Það er
    bannað að plata í þessu starfi.“ Nú geri ég kröfu um svör frá hæstv.
    ráðherra <ns:bjalla/> og ég vil minna hana á að í þessu ræðupúlti er okkur
    skylt að segja sannleikann í samræmi við drengskaparheit sem við
    <ns:bjalla/> undirrituðum við stjórnarskrá Íslands.<!--Þetta er þekkt tilvitnun frá KFrost úr Chess after dark, meðal annar skrifað upp hér: 
https://www.dv.is/frettir/2026/02/02/gudni-tekur-kristrunu-frosta-beinid-thannig-getur-ekki-leidtogi-thjodar-talad--></ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Forseti biður hv. þingmenn að virða
    ræðutímann.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>