<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-24T13:35:08" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:36:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:35:08">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="50">
      <ns:málsheiti>ástæða afsagnar mennta- og barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég skal vera hreinskilin fyrir hv. þm. Guðrúnu
    Hafsteinsdóttur sem hefur geð í sér til að koma fram með þeim hætti sem
    hún gerir hér í hinu háttvirta ræðupúlti Alþingis. Ráðherrastarfi fylgir
    mikil ábyrgð og mikið álag. Við störfum í umboði þjóðarinnar og okkur ber
    að tryggja að þau mikilvægu verkefni sem okkur eru falin nái fram að
    ganga. Ég tek þá ábyrgð alvarlega, líka þegar taka þarf erfiðar
    ákvarðanir. Það er ljóst að okkur Guðmund Inga greinir á um aðdraganda og
    ástæður þeirra breytinga sem urðu. Ég kannast ekki við þá mynd sem hefur
    verið dregin þar upp. Um leið og hann fór í veikindaleyfi gegndi ég
    embætti mennta- og barnamálaráðherra fyrir hann um tíma. Þegar mér varð
    ljóst í hversu stóra aðgerð Guðmundur Ingi fór þá lá það ljóst fyrir að
    mennta- og barnamálaráðuneytið gæti ekki svo vikum og jafnvel mánuðum
    skipti verið án öruggrar forystu. Það eru því fleiri en ein hlið á þessu
    máli en ég tel ekki rétt að ræða persónuleg málefni hans eða heilsufar
    frekar á opnum vettvangi. Guðmundur Ingi, háttvirtur, getur séð um það. Ég
    ætla ekki að gera það. Sá sem glímir við veikindi á að fá svigrúm til að
    sinna bata sínum í friði, enda sagði hv. þingmaður það ítrekað að hann
    myndi setja heilsuna í fyrsta sæti. Mér þykir leitt að samskiptin hafi
    þróast með þessum hætti. Ég ber ábyrgð á mínum ákvörðunum og ég stend við
    þær. Um leið virði ég að Guðmundur upplifði málið með öðrum hætti en ég.
    Ég þakka Guðmundi fyrir samstarfið og óska honum og fjölskyldu hans alls
    hins besta.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Forseti minnir á að ávallt ber að nefna
    þingmenn með fullu nafni.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>