<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T13:37:01" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:38:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:37:01">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="50">
      <ns:málsheiti>ástæða afsagnar mennta- og barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ekkert sem ég sagði hér í fyrri ræðu minni er
    eitthvað sem gögn styðja ekki við. Þetta hefur verið staðfest og ég ætla
    að minna ráðherra á það að hér liggja gögn að baki. Kjörtímabilið er ekki
    einu sinni hálfnað en skipan ríkisstjórnarinnar tekur miklum og ítrekuðum
    breytingum í kjölfar hinna ýmsu hneykslismála sem dunið hafa yfir
    ríkisstjórnarflokkana. Ríkisstjórnin var ekki orðin þriggja mánaða gömul
    þegar þáverandi mennta- og barnamálaráðherra sagði af sér vegna þrýstings
    greinilega frá valkyrjunum. Síðan þá hafa fjórir aðrir einstaklingar gegnt
    því embætti sem er gott dæmi um þann hringlandahátt sem einkennt hefur
    störf þessarar ríkisstjórnar. Framkoma stjórnvalda í þessum málum hefur
    grafið undan trausti almennings. Það er lágmarkskrafa að ríkisstjórnin
    sýni gagnsæi í sínum störfum, sýni ábyrgð og segi satt og rétt frá.
    <ns:bjalla/> Ef ráðherrar geta ekki veitt almenningi skýr og sannfærandi
    svör um mál þá eiga þeir að segja af sér <ns:bjalla/> og ef ríkisstjórnin
    ætlar að vinna eftir þessu siðferði þá segi ég: Nú er nóg komið. Takið
    ábyrgð á ykkar störfum og byrjað á að segja sannleikann. <ns:bjalla/> Það
    er lágmarkskrafan hér í þessu húsi. Íslenska þjóðin á skilið <ns:bjalla/>
    ráðherra sem segja satt. Hún á skilið betri ríkisstjórn en þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>