<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-24T13:39:02" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:39:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:39:02">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="50">
      <ns:málsheiti>ástæða afsagnar mennta- og barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hér talar stóri sannleikur Sjálfstæðisflokksins.
    Talandi um þrautagöngu menntamálaráðuneytisins, að þar hafi verið fjórir í
    embætti eftir að hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir vék til hliðar, það er
    rangt. Hér á að segja satt í ræðustóli Alþingis. Hér í fyrri fyrirspurn
    tínir hv. þingmaður og hefur geð í sér til að láta að því liggja að
    Flokkur fólksins hafi ekki átt að fá stuðning eins og aðrir
    stjórnmálaflokkar fjárhagslega. Það er rangt og það eru öll gögn um það.
    Þannig að hv. þingmaður, ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin
    skítapott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér
    fram með dylgjur og ósannindi</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Forseti biður hæstv. ráðherra að gæta orða
    sinna.</ns:forseti></ns:mgr>

    <ns:mgr>— eins og hún hefur hreinlega verið að gera.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>