<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T13:40:22" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:42:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:40:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="51">
      <ns:málsheiti>gjaldskrárhækkanir</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er kannski sniðugt að við tökum okkur
    tveggja mínútna hlé til að róa okkur niður, held ég. Það væri
    ágætistillaga. Ég ætla samt að reyna að eiga orðastað við hæstv.
    ráðherra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ríkisstjórninni er tamt að hrósa sjálfri sér
    fyrir ýmislegt, hvort sem það er að negla niður verðbólgu og/eða að hækka
    ekki skatta. Staðreyndin er hins vegar sú að verðbólga, vextir og skattar
    fara síhækkandi. Sjálfshól ríkisstjórnarinnar nær þó einnig til annarra
    þátta. Ríkisstjórnin hefur ítrekað hreykt sér af því hvað hún standi
    sterkan vörð um þá sem minna mega sín. Það skýtur því skökku við að
    ríkisstjórnin hefur boðað ýmsar skattahækkanir í fjárlögum sem lenda m.a.
    á öldruðum og öryrkjum. Má þar t.d. nefna hækkun á tekjuskatti, hækkun á
    skatti á heimilin í formi forvarnagjalds og kílómetragjaldið sívinsæla.
    Verst var þó þegar ríkisstjórnin ákvað að setja sérstök komugjöld í
    sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun fyrir aldraða og öryrkja sem
    falla auk þess ekki í afsláttarstofn. Slík þjálfun þarf eðli málsins
    samkvæmt að vera stunduð reglulega og oft í lengri tíma. Kostnaður
    langveikra við að nýta sér þessa þjónustu getur því hæglega margfaldast
    vegna þessara breytinga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Því vil ég spyrja hæstv. barna- og menntamálaráðherra hvort ekki
    hafi verið hægt að haga hækkun komugjalda og boðuðum skattahækkunum á þann
    veg að þær myndu ekki bíta aldraða og öryrkja, sér í lagi í ljósi þess að
    slíkar hækkanir leggjast einmitt þyngst á þann samfélagshóp.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>