<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-24T13:42:24" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:44:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:42:24">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="51">
      <ns:málsheiti>gjaldskrárhækkanir</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og ég get
    tekið undir að það er alltaf erfitt þegar verið er að leggja gjöld á
    efnaminna fólk. En ég get upplýst að það er í skoðun núna að reyna að
    horfa meira til tekjutengingar að þessu leyti eins og víðs vegar annars
    staðar. Þegar verið er að tala um hækkanir eins og t.d. að ríkisstjórnin
    hefur boðað þessar gjaldskrárhækkanir um áramót og annað slíkt þá hefur
    þegar komið fram að það er ekki heilagur staður. <!--heyrist hún segja staður, ekki stafur.-->Það
    er verið að skoða þessi mál enn betur og það kemur ekki í ljós fyrr en um
    áramótin hvernig það stendur raunverulega. Þegar við erum að tala um
    aldraða og öryrkja get ég staðið hér mjög stolt. Og það verð ég að segja
    að fyrrverandi flokksfélagi minn og minn besti samstarfsmaður þáverandi,
    hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson, og ég börðumst fyrir því öll okkar ár
    í stjórnarandstöðu að tekjutengja kjör eldra fólks og öryrkja,
    almannatryggingaþega, við launavísitölu. Okkur tókst það fyrir páskana og
    munu þessir hópar fá gífurlega mikla kjarabót þann 1. janúar næstkomandi.
    Það hlýtur náttúrlega að skipta miklu máli. Við erum búin að hækka laun
    þeirra líka í öðru formi um tugi þúsunda króna frá því að Flokkur fólksins
    settist í þessa ríkisstjórn, þannig að það er borð fyrir báru frekar en ef
    þau hefðu setið eftir í umboði Miðflokks og Sjálfstæðisflokks og fengið að
    lepja dauðann áfram úr skel. Þannig að það má segja að plásturinn hafi
    verið rifinn af. Við fengum fólkið okkar til að takast á herðar erfiðar
    ákvarðanir sem myndu um leið lækna sárin og við sjáum bjartari framtíð
    fram undan. Við viljum síður vera að borga tæpan hálfan milljarð á dag í
    vexti. Við leggjum mikið kapp á að reyna að ná öllu réttum megin við
    núllið og hætta að reka ríkissjóð á yfirdrætti og þegar okkur hefur tekist
    það, hv. þingmaður, sem verður næsta á næsta ári, þá munum við sannarlega
    sjá bjartari tíma fram undan. En ég ætla að endurtaka það að þetta eru
    þjónustugjöld en ekki skattar sem eru gjöldin hjá sjúkraþjálfurum, svo það
    sé sagt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>