<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T13:44:42" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:45:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:44:42">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="51">
      <ns:málsheiti>gjaldskrárhækkanir</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég átta mig reyndar ekki alveg á síðustu sneið
    hæstv. ráðherra en hún kannski skýrir það fyrir mér síðar. En ég hlýt að
    fagna, virðulegi forseti, þeim orðum hæstv. ráðherra um að það standi til
    að endurskoða þessi gjöld. Ég vona svo sannarlega að það verði í þá þágu
    að lækka þau en ekki að hækka þau.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar líka til að nefna það hér, af því að hæstv. ráðherra
    heldur því eiginlega fram að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið eitthvað
    sérstaklega vondur við gamla fólkið og öryrkjana, að mér finnst hreinlega
    undarlegt að hæstv. ráðherra geri okkur upp þessar hvatir. Það var einmitt
    ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins sem byrjaði með eingreiðslur til öryrkja
    í desember ár hvert til viðbótar við desemberuppbót lífeyrisþega og það
    gerðum við án þess að hækka tekjuskatt sama hóps á móti. Svo verður
    auðvitað að nefna það að vísitölumálið, sem hefur í rauninni komið fram
    oft hér áður, var auðvitað eins og eldur á verðbólgubálið líkt og
    seðlabankastjóri varaði við. Og hver er staðan nú? Síhækkandi vextir,
    aukin verðbólga og kjarasamningar í uppnámi. Það er staðan, hæstv.
    ráðherra.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>