<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-24T13:46:01" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:46:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:46:01">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="51">
      <ns:málsheiti>gjaldskrárhækkanir</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Jú, við glímum við ýmsar áskoranir. En staðreyndin er
    sú að Sjálfstæðisflokkur hv. þm. Ólafs Adolfssonar hefur barist gegn því
    með kjafti og klóm að okkur tækist að leiðrétta og hækka og auka við
    greiðslur inn í almannatryggingakerfið. Það hefur verið alveg alfa og
    ómega að það væri í rauninni það sem myndi nánast hvolfa þjóðarskútunni
    og, eins og hv. þingmaður ýjar að, að verðbólgubálið og vextirnir og annað
    slíkt — eins og það væri í rauninni því að kenna að við lyftum upp
    fátækasta fólkinu í landinu, að það væri hægt að setja þá sök á
    almannatryggingaþega í neðstu tekjutíundunum ef okkur gengi ekki nógu vel.
    Það er bara ekki svo, hv. þingmaður. En Sjálfstæðisflokkurinn, með fullri
    virðingu, hefur einmitt staðið vörð um það og komið í veg fyrir það eins
    og hann hefur mögulega getað, með öllum tiltækum ráðum, að okkur tækist að
    tengja launavísitölu við almannatryggingar. <ns:frammíkall skst="ÓA">Það
    er hárrétt.</ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>