<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T13:47:11" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:49:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:47:11">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="52">
      <ns:málsheiti>árangur í orkuskiptum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég er fegin að hæstv. umhverfis-, orku- og
    loftslagsráðherra er hér til svara úr því að hæstv. félags - og
    húsnæðismálaráðherra boðaði forföll í morgun vegna veikinda. Mig langaði
    þá að velta fyrir mér loftslagsmálum við hæstv. umhverfis-, orku- og
    loftslagsráðherra í kjölfar blaðamannafundar sem hann hélt nýlega um losun
    gróðurhúsalofttegunda. Þar kynnti hann einhverjar tölur í því sambandi.
    Hann rakti þar sérstaklega að 10 milljarðar hefðu runnið til bílaleiganna
    í landinu í formi styrkja, ýmist með beinum eða óbeinum hætti. Má þar
    nefna undanþágu frá virðisaukaskatti og einhverja afslætti og jafnvel svo
    beinar niðurgreiðslur til kaupa á bílum. Nú hefur komið í ljós að allir
    þessir styrkir og árangurinn af þessu hefur verið sá að útleiga á
    rafmagnsbílum hjá bílaleigum hefur farið úr 1% í rúmlega 2%, 2,5% held ég
    að það hafi verið. Svo má auðvitað nefna líka önnur útgjöld ríkissjóðs og
    skattgreiðenda sem nema tugum milljarða ef ekki 100 milljörðum kr. á
    undanförnum árum, í niðurgreiðslu eða einhverja styrki í þágu
    rafbílavæðingar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort honum finnist í ljósi
    þessa litla árangurs sem hefur náðst þarna hafa verið farið vel með fé
    skattgreiðenda. Hundruð milljarða hafa runnið í þetta og árangurinn er
    nánast enginn. Sérstaklega ber að hafa í huga að útblástur, losun
    gróðurhúsalofttegunda af vegasamgöngum, er ekki nema 8% af
    heildarlosuninni. Þá eru ekki meðtaldar flugsamgöngur. Og ef við tökum
    fjölskyldubílinn þá eru það 3% sem losun frá fjölskyldubílnum skilar. Er
    vel farið með peninga? Hefur það verið gert á undanförnum árum
    <ns:bjalla/> með yfir 100 milljarða kr. niðurgreiðslu í þennan
    málaflokk?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>