<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-24T13:49:31" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:51:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:49:31">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="52">
      <ns:málsheiti>árangur í orkuskiptum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta
    upp. Fyrst um bílaleigumálefnin almennt þá sé ég eftir þessum fjármunum.
    Ég held að þessum 10 milljörðum hafi ekki verið vel varið, ég tel að
    afraksturinn sé rýr og að þessir fjármunir hefðu betur verið nýttir með
    öðrum hætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo spyr hv. þingmaður með almennari hætti: Telur hæstv. ráðherra
    að farið hafi verið vel með peninga? Stutta svarið við því er nei. Ég tel
    að það hafi alls ekki verið farið vel með peninga hérna á undanförnum
    árum. Það er svolítið eins og Sjálfstæðisflokkurinn kunni ekkert nema að
    eyða peningum og hækka skatta og gjöld þannig að það er svolítið það sem
    við höfum verið að horfa upp á og þess vegna erum við loksins að fara í
    alvöruútgjaldaaðhald í ríkisfjármálum. Við erum að fara niður í u.þ.b. 30%
    af vergri landsframleiðslu. Við erum í markvissri vinnu við að halda aftur
    af fjölgun stöðugilda hjá ríkinu; þeim fjölgaði um sirka 800 á ári 2024 og
    2025. Sú fjölgun hefur dregist stórkostlega saman. Þeim fjölgaði um 100
    núna á fyrsta ári þessarar ríkisstjórnar um leið og við fórum í mjög
    markvissa vinnu við aðhald í ríkisútgjöldum og þetta gildir um
    loftslagsmálin líka: 10 milljarða gjafir til bílaleigufyrirtækja eru
    arfaslæm ráðstöfun á fjármunum sem skilaði allt of litlu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þannig að stutta svarið við þessu er nei, það var ekki farið nógu
    vel með peninga. Einmitt þess vegna erum við að forgangsraða mjög
    kirfilega loftslagsaðgerðum þannig að við setjum peninga í þau verkefni
    sem skila mestum loftslagsávinningi á hverja krónu. Sú vinna gengur
    almennt vel og ég hlakka til samstarfs við hv. þingmann um þessi mál og
    frekari samtala hér í þingsal og víðar um loftslagsmálin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>