<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T13:51:42" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:53:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:51:42">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="52">
      <ns:málsheiti>árangur í orkuskiptum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég er fegin að heyra þetta svar. Ég er fegin
    að heyra að hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er sammála mér
    um að þessum peningum hafi verið illa varið. Það er nú bara því miður
    þannig að það eru meinlokumenn um loftslagsmál í hverjum einasta
    stjórnmálaflokki sem hér hefur tekið sæti á þingi nema í Miðflokknum. Það
    er þannig, því miður. Ég vek athygli hæstv. ráðherra á því að það er enn
    þá gert ráð fyrir miklum niðurgreiðslum í rafbílavæðinguna í þessu
    fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir um beina styrki og óbeina styrki í
    þennan málaflokk.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Og ég spyr aftur: Er hæstv. ráðherra þeirrar skoðunar, þegar
    Ísland er heimsmeistari þegar kemur að loftslagsmálum, í losun
    gróðurhúsalofttegunda og nýtingu sjálfbærra orkugjafa, að það sé vit í því
    að eyða þessum peningum í þetta? Er vit í því að forgangsraða með þessum
    hætti og ýta á eftir þróun sem er að gerast? Eigum við ekki að leyfa
    þróuninni að eiga sér stað? Hún mun gerast eins og bílaleigurnar hafa
    verið að benda á. Þetta gerist hægt en það mun gerast. Að lokum vil ég
    spyrja hvort hæstv. ráðherra <ns:bjalla/> ætli raunverulega að standa við
    þá hótun sem hann setti fram í síðustu viku í tengslum við þennan
    blaðamannafund að refsa skattgreiðendum, að refsa fjölskyldum í landinu,
    <ns:bjalla/> ef bílaleigum tekst ekki að leigja út rafbíla til erlendra
    ferðamanna?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>