<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="umhv.- og loftslrh." frhr="0" id="r2026-09-24T13:53:10" skst="JPJ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:54:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:53:10">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="52">
      <ns:málsheiti>árangur í orkuskiptum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Fjárfestingarstuðningur í þágu loftslagsmála
    og orkuskipta getur verið mjög þjóðhagslega arðbær og skynsamlegur fyrir
    okkur öll og fyrir þjóðarbúið. Við erum einmitt að forgangsraða þeim
    aðgerðum sem eru til þess fallnar að styðja við samkeppnishæfni á Íslandi,
    styðja við áfallaþol. Það er til mikils að vinna að draga hraðar úr losun
    frá vegasamgöngum, spara gjaldeyri, gera heimili og fyrirtæki óháðari
    sveiflum á t.d. alþjóðlegum orkumörkuðum sem við ráðum ekkert við.
    Varðandi hótanir á blaðamannafundi þá finnst mér það pínu kúnstug túlkun.
    En það sem ég var kannski að vísa þar til er að hér var árið 2020 samþykkt
    á Alþingi af þingmönnum hvers einasta flokks í þessum sal, líka af
    þingmönnum Miðflokksins, staðfesting á ákvörðun sameiginlegu
    EES-nefndarinnar um breytingu á bókun 31 við EES-samninginn þar sem Ísland
    var að undirgangast skuldbindingar til að draga mjög hratt úr
    samfélagslosun. Þetta var samþykkt hér í þessum sal. Þetta er orðið hluti
    af EES-samningnum og því geta fylgt fjárhagslegar skuldbindingar
    <ns:bjalla/> ef við stöndum okkur ekki í stykkinu. Ég hvet þingmenn úr
    öllum flokkum til að reyna að kannast við þetta sem hér var samþykkt.
    <ns:bjalla/> Nú er það bara sameiginlegt verkefni að greiða úr þessu og ná
    árangri. Þetta þarf ekki að þýða að fjárhagslegur baggi lendi á
    skattgreiðendum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>