<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T13:55:11" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:57:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:55:11">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="53">
      <ns:málsheiti>aðkoma ráðherra að afsögn mennta- og barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Stjórnmál ganga út á heilindi, heiðarleika og
    trúverðugleika. Í siðareglum fyrir alþingismenn segir í 5. gr., með leyfi
    forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/thingmenn/hagsmunaskraning/sidareglur/-->

    <ns:mgr>„Alþingismenn skulu sem þjóðkjörnir fulltrúar:</ns:mgr>

    <ns:mgr>a. rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika“.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú er komið upp mál þar sem tveir alþingismenn, hv. þm. Guðmundur
    Ingi Kristinsson og hæstv. ráðherra Inga Sæland, deila um hver
    aðdragandinn að afsögn þess fyrrnefnda sé raunverulega, þ.e. hvort honum
    hafi verið stillt upp við vegg og afsagnar krafist eða hvort, eins og
    hæstv. ráðherra, Inga Sæland, segir, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-17-enginn-sannleikur-bara-olikar-upplifanir-487364-->

    <ns:mgr>„Ég upplifi þetta ekki í neinu samhengi við það sem þarna kemur
    fram.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Nú liggja fyrir skrifleg skilaboð þar sem hv.
    þm. Guðmundi Inga Kristinssyni er sagt að ákvörðun um brotthvarf hans hafi
    þegar verið tekin og valið standi á milli afsagnar eða stríðs.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson var á
    sjúkrahúsi. Ég spyr því hæstv. starfandi forsætisráðherra mjög einfaldrar
    spurningar: Hafði hæstv. starfandi forsætisráðherra, Inga Sæland, afskipti
    af þessari afsögn fyrrverandi ráðherra, Guðmundar Inga Kristinssonar,
    <ns:bjalla/> eins og fram hefur komið í skriflegum skilaboðum frá
    fyrrverandi aðstoðarmanni hans, Guðbjörgu Ingu Magnúsdóttur?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>