<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-24T13:57:37" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 13:59:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T13:57:37">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="53">
      <ns:málsheiti>aðkoma ráðherra að afsögn mennta- og barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, um
    heiðarleika og allt það. Ég vísa hér í persónuleg skrif aðstoðarmanns hv.
    þm. Guðmundar Inga Kristinssonar sem var í rauninni ekki að sinna neinu
    nema að vera aðstoðarmaður og ég gat ekki séð annað en að þessi skilaboð
    væru einstaklega hlý og falleg. Ég átta mig engan veginn á einhverju
    stríði: Annaðhvort segirðu af þér eða stríð. Sannleikurinn er sá að það
    liggur algerlega fyrir að til þess að svona lagað komi upp þá verður
    alltaf samtal. Ég og hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir
    heimsóttum Guðmund Inga Kristinsson þar sem við sátum með honum vel á
    annan tíma eftir að hann var nýkominn út af sjúkrahúsinu þar sem við vorum
    að ræða um menntamálaráðuneytið, um stöðuna og um hans veikindi. Við
    kveðjumst með það að leiðarljósi að Guðmundur Ingi áskildi sér það að hann
    myndi gefa sér stundarkorn til að taka ákvörðun um það sem hann ætlaði að
    gera í framhaldinu. Það var skýrt að þann 8. janúar þá birti hann að
    vandlega yfirlögðu ráði yfirlýsingar í öllum fjölmiðlum um það að hann
    hefði ákveðið að stíga til hliðar með tilliti til þess að ætla að eyða
    orkunni sinni í það að ná bata.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Reyndar hef ég ekkert meira um þetta að segja og mér finnst með
    hreinum ólíkindum, bara með ólíkindum hvernig er verið að draga fram
    viðkvæm mál og reyna að búa til úr þeim eitthvað annað en það er. Og ég
    segi bara enn og aftur: Mín upplifun hefur ekki verið slík sem ég er að
    lesa hér og sem ég er að skynja í kommentakerfum eða annað. Mín upplifun
    hefur aldrei verið sú að ég ætlaði að setja á mig plóg og ráðast inn á
    sjúkrastofu hjá Guðmundi Inga til að skipa honum að segja af sér. Þetta er
    bara algjörlega úr lausu lofti gripið. Þannig að ég segi bara aftur: Ég er
    ekki, hv. þingmaður, að upplifa það í neinum takti við það sem þú, Stefán
    Vagn, hv. þingmaður, kýst að leggja hér fram.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Forseti minnir hæstv. ráðherra á að það á
    að ávarpa forseta en ekki þingmenn beint.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>