<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:00:00" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:01:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:00:00">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="53">
      <ns:málsheiti>aðkoma ráðherra að afsögn mennta- og barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það kom kannski ekkert sérstaklega á óvart að
    hæstv. ráðherra Inga Sæland svaraði í engu spurningunni þó að hún hafi
    verið eins einföld og skýr og hægt er að setja hana fram. Þetta sem ég er
    hér að spyrja um, og fleiri þingmenn, er ekki eitthvað sem ég er að leggja
    fram; þetta eru einfaldlega tölvupóstsamskipti aðstoðarmanns til hv.
    þingmanns. Þetta er ekki eitthvað sem við hér á Alþingi eða í
    stjórnarandstöðunni erum að búa til. Þetta eru bara upplýsingar sem eru
    hér á miðlunum í dag. Ég skil ekki hvernig hv. þingmaður getur haft
    einhverja aðra upplifun og þvílíkur dónaskapur gagnvart hv. þingmanni að
    koma svona fram og tala um upplifun. Ég verð nú bara að segja, virðulegur
    forseti, hér enn og aftur að ef þetta eru hlý og falleg skilaboð til
    þingmanna Flokks fólksins, <ns:bjalla/> guð minn góður, hvernig eru þá
    hin? Stríð — hlý og falleg.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>