<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-24T14:01:20" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:02:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:01:20">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="53">
      <ns:málsheiti>aðkoma ráðherra að afsögn mennta- og
      barnamálaráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég bara gef lítið fyrir allar þessar
    stríðsyfirlýsingar hv. þingmanns. Hann tekur hreinlega þennan póst
    algerlega úr samhengi, eins og honum einum er lagið. Ég segi bara
    einfaldlega: Ég sá ekki þennan póst, ég sé hann bara í fjölmiðlum í
    morgun. Þetta eru persónuleg skilaboð aðstoðarmanns við þáverandi hæstv.
    ráðherra sem tekur í rauninni þann pól í hæðina að birta hann opinberlega.
    <ns:frammíkall/> Persónuleg skilaboð.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Ráðherra er með
    orðið.</ns:forseti></ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og ég sé það er aðstoðarmaður ráðherra að aðstoða hann eftir
    bestu getu. Það eina sem við vorum að leggja allt okkar afl í var að taka
    utan um hv. þm. Guðmund Inga Kristinsson þannig að hann myndi stíga frá
    þessu embætti með reisn. <ns:frammíkall/> Mér sýnist í rauninni staðan
    vera orðin eitthvað einkennileg, svo ekki sé meira sagt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>