<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-24T14:02:33" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-24 14:04:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="11" lgþ="158" tími="2026-09-24T14:02:33">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="54">
      <ns:málsheiti>aðdragandi afsagnar ráðherra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Maður getur tekið undir að það er auðvitað bagalegt
    að þurfa að fara í þessum smáatriðum í þessa atburðarás en það tel ég þó
    einfaldlega vera skyldu okkar þingmanna að grafast frekar fyrir um
    sannleikann í málinu þegar hæstv. ráðherra verður margsaga um afdrifaríkt
    mál sem er afsögn þáverandi hæstv. menntamálaráðherra. Hæstv. ráðherra
    talar um að þetta snúist um að taka utan um þáverandi menntamálaráðherra
    en spurningin er: Snerist málið um að taka utan um hæstv. ráðherra eða,
    eins og fyrrverandi aðstoðarkona lýsir beinum og berum orðum í skilaboðum,
    snerist þetta um að kynna honum ákvörðun forystumanna ríkisstjórnarinnar
    um að hann yrði að láta af embætti? Það er sú spurning sem hæstv. ráðherra
    hefur ekki svarað hér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tek eftir því að hæstv. ráðherra talar um að einhver hugtök um
    stríð og annað eins séu að birtast hér frá stjórnarandstöðu eða í
    kommentakerfum. Þetta er einfaldlega frá sjálfum aðstoðarmanni þáverandi
    ráðherra og önnur spurning sem vaknar þá er hvort það framferði þáverandi
    aðstoðarmanns, sem var aðstoðarmaður hæstv. menntamálaráðherra en er
    einnig eiginkona þess ráðherra sem þarna fór inn í ríkisstjórn eftir þessa
    atburðarás, sé þá í óþökk hæstv. ráðherra núna og hafi verið í óþökk
    hæstv. ráðherra og nokkuð sem þessi aðstoðarmaður tók upp hjá sjálfum sér.
    Vegna þess að það hljómar eins og þessi skilaboð komi flatt upp á hæstv.
    menntamálaráðherra eins og hann lýsir því núna. En á sama tíma er þar
    verið að tala um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hæstv.
    menntamálaráðherra fari frá embætti og það er óþarfi að svara því með því
    að þykjast koma af fjöllum. Það er óþarfi að svara því með skætingi svo að
    hæstv. forseti þurfi að grípa inn í. Það er einfaldlega hægt að svara því
    hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hafi tekið sérstaka ákvörðun um að
    tiltekinn ráðherra þyrfti að fara úr embætti eða ekki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>